Viðskipti innlent

Straumur fær frest til að skila ársreikningi

Vegna stöðu Straums hefur Fjármálaeftirlitið (FME) veitt bankanum frest til að skila ársreikningi fyrir árið 2008 til loka maí mánaðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

Í tilkynningunni segir að þann 19. mars s.l. veitti Héraðsdómur Reykjavíkur Straumi heimild til greiðslustöðvunar sem gildir til 11. júní n.k., sbr. tilkynningu frá Straumi þann 19. mars.

Endurskipulagning Straums stendur nú yfir og hefur framkvæmdastjórn bankans fundað með lánveitendum í þeim tilgangi að endurskipuleggja rekstur félagsins og koma nýrri skipan á fjármál þess, sbr. tilkynningar frá Straumi 30. mars og 17. apríl s.l.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×