Aldrei mælst jafn mikill þjónustujöfnuður 26. ágúst 2009 12:22
Þjónustujöfnuðurinn var jákvæður um 7,2 milljarða króna á öðrum fjórðungi þessa árs samanborið við 10,6 milljarða króna halla á sama ársfjórðungi í fyrra, samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í morgun. Samkvæmt Morgunkorni Íslandsbanka hefur aldrei áður mælst jafn mikill afgangur af þjónustuviðskiptum við útlönd á öðrum ársfjórðungi. Síðast mældist afgangur á öðrum ársfjórðungi af þessum hluta viðskiptajafnaðarins árið 1998. Sýna tölurnar áhrif samdráttarins á innlendum markaði og þær miklu breytingar í utanríkisviðskiptum sem gjaldeyris- og bankakreppan hefur kallað á.Mikil aukning í útfluttri þjónustu Flutt var út þjónusta fyrir 70,4 milljarða á öðrum fjórðungi í ár samanborið við 43,1 milljarða á sama tíma í fyrra. Skýrist aukningin aðallega af lækkun gengis krónunnar en á föstu gengi jukust þessar útflutningstekjur á tímabilinu um 18,3%. Aukningin á föstu gengi er aðallega vegna aukinna gjaldeyristekna af ferðalögum en á föstu gengi jukust þær um 53,4% á tímabilinu og námu 19,6 milljörðum á öðrum ársfjórðungi.Samdráttur í innfluttri þjónustu Flutt var inn þjónusta fyrir 63,2 milljarða á öðrum fjórðungi ársins samanborið við 53,8 milljarða á sama tímabili í fyrra. Á föstu gengi dróst þessi innflutningur saman um 27,6% á tímabilinu og má þar greina áhrif kreppunnar, en samdrátturinn er aðallega í gjöldum vegna ferðalaga sem drógust saman um 58,5% á föstu gengi á tímabilinu. Sést þar að Íslendingar hafa verulega dregið úr ferðalögum sínum erlendis, líkt og lesa hefur mátt úr tölum um brottfarir um Leifsstöð og erlenda kortaveltu Íslendinga. 25,7 milljarða króna afgangur af vöru- og þjónustujöfnuði Vöruskiptin voru á öðrum ársfjórðungi jákvæð um 18,4 milljarða króna samanborið við halla upp á 0,8 milljarða á sama tíma í fyrra. Samkvæmt þessu var afgangur á vöru- og þjónustuviðskiptum við útlönd upp á 25,7 milljarða á öðrum fjórðungi þessa árs samanborið við halla á sama tíma í fyrra upp á 11,4 milljarða. Það hefur því orðið umtalsverður viðsnúningur í utanríkisviðskiptum á tímabilinu eða sveifla upp á 37,1 milljarða. Rétt er þó að halda til haga að um bráðabirgðatölur um þjónustujöfnuð er að ræða og mun Hagstofan endurskoða tölurnar eftir því sem efni standa til.
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira