Mannekla hamlar rannsókn Svavar Hávarðsson skrifar 11. júní 2009 00:01 Fram eru komnar hugmyndir um að þrír saksóknarar komi að rannsókn föllnu bankanna. fréttablaðið/valli
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, telur að fjölga þurfi starfsmönnum embættisins um helming „að minnsta kosti". Vegna fjölskyldutengsla Valtýs Sigurðssonar ríkissaksóknara undirbýr dómsmálaráðherra lagabreytingu til að setja sérstakan ríkissaksóknara, sem annast mál sem frá embætti Ólafs koma. Björn Bergsson hæstaréttardómari mun gegna stöðunni. Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara, sagði í Kastljósviðtali í gærkvöldi að rannsókn á efnahagshruninu muni litlu skila nema embættið verði stóreflt. Hún vill að ráðnir verði þrír saksóknarar, einn fyrir hvern banka, einnig endurskoðendur og fleiri erlendir sérfræðingar. Hún vill jafnframt að ríkissaksóknari víki en hann er faðir Sigurðar Valtýssonar, forstjóra Exista. Ólafur Þór tekur undir með Evu Joly hvað varðar styrkingu embættisins. „Að minnsta kosti", segir hann þegar blaðamaður spyr hvort nauðsynlegt sé að fjölga starfsmönnum hans úr tólf í 24. Upphaflega voru hugmyndir Evu Joly um að starfslið Ólafs væri 25 til 30 manns. „Betur má ef duga skal og mat hennar er byggt á upplýsingum frá okkur um væntanlegan málafjölda og eðli mála. Nú eru komin til embættisins á þriðja tug mála og við vitum að fleiri eru á leiðinni." Ólafur segir það lagalegt atriði hvort þrír saksóknarar verði ráðnir, eftir hugmyndum Evu. Velta megi fyrir sér hvort það verði einn sérstakur saksóknari og til hans svari þrír saksóknarar, einn fyrir hvern banka. „Slíkt væri ugglaust hægt að útfæra. Öll styrking embættisins myndi flýta því verki sem fram undan er," segir Ólafur. Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra greindi ríkisstjórn frá því á þriðjudag að Eva Joly geri kröfu um þrjá saksóknara. Eins að hún væri að undirbúa lagabreytingar í þá átt en að það yrði að gerast innan þess fjárlagaramma sem embættinu hefur verið búinn. „Ég tel mig ekki vera í aðstöðu til að fara fram á frekara fjármagn, í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu, en myndi fagna því ef frekara fjármagn finnst." Ragna ætlar að skipa Björn Bergsson hæstaréttarlögmann sem ríkissaksóknara við hlið Valtýs Sigurðssonar vegna vanhæfis hans, og undirbýr frumvarp í þeim tilgangi. Björn mun annast öll mál sem frá embætti sérstaks saksóknara koma. Valtýr hafði fyrr lýst sig vanhæfan í málefnum varðandi bankahrunið.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira