Atvinnuleysi minnkar, var 8,7% í maí 11. júní 2009 12:11
Skráð atvinnuleysi í maí 2009 var 8,7% eða að meðaltali 14.595 manns og minnkar atvinnuleysi um 1,5% að meðaltali frá apríl eða um 219 manns. Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 1%, eða 1.739 manns. Í frétt um málið á vefsíðu Vinnumálastofnunnar segir að vegna árstíðasveiflu eykst áætlað vinnuafl í 167.789 manns í maí eða um rúm 5.000 sem hefur áhrif á reiknað atvinnuleysishlutfall til lækkunar. Atvinnuleysi er nú mest á Suðurnesjum 14,2% en minnst á Vestfjörðum 2,3%. Atvinnuleysi breytist lítið á höfuðborgarsvæðinu en minnkar um 4,6% á landsbyggðinni. Alls staðar dregur úr atvinnuleysi á landsbyggðinni. Hlutfallslega dregur mest úr atvinnuleysi á Austurlandi eða um 67 manns og fer atvinnuleysi þar úr 5,2% í 4,1%. Atvinnuleysi eykst um 2,9% meðal kvenna en minnkar um 3,8% meðal karla. Atvinnuleysið er 9,7% meðal karla og 7,4% meðal kvenna. Langtímaatvinnuleysi er nú tekið að aukast og þeir sem verið hafa á skrá lengur en 6 mánuði voru 4.836 í lok maí en 3.269 í lok apríl og eru nú um 30% allra á atvinnuleysisskrá. Þeir sem verið hafa atvinnulausir í meira en ár voru 435 í lok maí en 361 í lok apríl. Atvinnulausum 16-24 ára hefur fjölgað úr 3.588 í lok apríl í 3.734 í lok maí og eru þeir um 23% allra atvinnulausra í maí en voru um 21% í lok apríl. Yfirleitt batnar atvinnuástandið frá maí til júní, m.a. vegna árstíðasveiflu en gera má ráð fyrir að einhver fjöldi nemenda komi á atvinnuleysisskrá í júní.Erfitt er að áætla atvinnuleysi um þessar mundir vegna mikillar óvissu í efnahagslífinu,en líklegt er að atvinnuleysið í júní 2009 muni minnka og verða á bilinu 7,9%-8,4%, talsverð aukning er á framboði vinnuafls milli maí og júní, sem nemur um 6.700 manns og hefur áhrif á reiknað atvinnuleysi. Í fyrra var atvinnuleysið 1,1%.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira