Umferðarslysum fækkar Steinunn Stefánsdóttir skrifar 13. október 2009 06:00 Á tímum þegar flestar fréttir eru heldur vondar fréttir er bæði hollt og gott að halda því til haga sem horfir til betri vegar í samfélaginu. Þetta á við um glímuna við umferðarslys og afleiðingar þeirra. Þrátt fyrir að umferð á vegum hafi aukist gríðarlega á undanförnum árum og víða standi vegakerfið á álagstímum illa undir þeirri umferð sem því er ætlað að bera fer dauðaslysum í umferð heldur fækkandi. Nýjar tölur um fækkun alvarlega slasaðra milli ára gefa vonandi vísbendingu um að árangur sé einnig að nást á því sviði. Fyrstu sex mánuði ársins fækkaði slösuðum í umferðinni um rúm sextán prósent miðað við sama tímabil í fyrra, en þar á undan fjölgaði alvarlega slösuðum ár frá ári. Varlega þarf þó að fara í ályktunum út frá tölum milli tímabila vegna þess hve mikið vægi hvert slys hefur í heildartölum hvers árs í fámenninu hér á landi. Séu lengri tímabil skoðuð og sést þó að fórnarlömbum umferðarslysa fækkar hægt og bítandi þó að ekki dragi úr umferð. Samkvæmt talningu Vegagerðarinnar dró ekki úr umferð milli ára, eins og sumir höfðu talið að myndi gerast vegna kreppunnar. Hins vegar hefur dregið úr meðalhraða og ofsaaksturstilvikum hefur einnig fækkað; umferðarmenning hefur sem sagt batnað. Gera má ráð fyrir að hert viðurlög við umferðarbrotum hafi þarna ákveðið forvarnagildi en vonandi má líka greina einhverja vitundarvakningu meðal ökumanna um þá ábyrgð sem felst í því að aka bíl. Loks verður að taka það með í reikninginn að öryggisbúnaður bifreiða er í stöðugri framþróun þannig að ætla má að bílarnir verji bílstjóra og farþega nú betur en áður. Þeir sem ekki hafa sjálfir orðið fyrir slysi í umferðinni, eða einhver þeim nákominn, leiða sjaldan að því hugann hversu afdrifarík umferðarslys eru. Þeir sem slasast alvarlega í umferðarslysi búa iðulega við skerta eða jafnvel afar litla starfsgetu þaðan í frá. Afleiðingarnar eru óhjákvæmilega minni tekjur, sem hafa í för með sér skert lífsgæði ofan á þá skerðingu lífsgæða sem beinar afleiðingar slyssins valda. Þá er ótalinn sá kostnaður sem samfélagið í heild ber af afleiðingum umferðarslysa. Samkvæmt umferðaröryggisáætlun er það markmið íslenskra stjórnvalda að fjöldi látinna í umferð á hverja 100.000 íbúa sé ekki meiri en lægst gerist hjá öðrum þjóðum árið 2016. Sömuleiðis að fjöldi látinna og alvarlegra slasaðra í umferð lækki að jafnaði um fimm prósent á ári til ársins 2018. Fyrra markmiðið virðist í réttum farvegi og tala látinna í umferðarslysum á Íslandi fylgir nokkuð sömu þróun og á Norðurlöndunum og er heldur lækkandi. Árangurinn hefur ekki verið jafngóður þegar kemur að alvarlega slösuðum. Samanburðartölur um fjölda slasaðra á fyrri hluta áranna 2008 og 2009 gefa vonandi tóninn um viðsnúning þar. Bílstjórinn sjálfur gegnir lykilhlutverki í umferðaröryggismálum. Andvaraleysi hans eitt andartak getur haft gífurlega afdrifaríkar afleiðingar. Því betur sem bílstjórar gera sér grein fyrir því, þeim mun minni hætta er okkur búin á vegunum. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson Skoðun Það sem voru „bjartari tímar“ í fyrra eru nú bölvaðar skattahækkanir Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hvað hafa sjómenn gert Samfylkingunni? Sigfús Karlsson Skoðun Framtíð Suðurlandsbrautar Birkir Ingibjartsson Skoðun Ólaunuð vinna kvenna Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir Skoðun Gagnrýni á umfjöllun um loftslagsmál og landnotkun í bókinni Hitamál Eyþór Eðvarðsson Skoðun Íslenska er leiðinleg Nói Pétur Á Guðnason Skoðun Réttlæti án sannleika er ekki réttlæti Hilmar Kristinsson Skoðun Hverjum voru ráðherrann og RÚV að refsa? Júlíus Valsson Skoðun Nokkur orð um Fjarðarheiðargöng Þórhallur Borgarsson Skoðun
Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson Skoðun
Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson Skoðun