Greining Íslandsbanka spáir óbreyttum stýrivöxtum 25. júní 2009 11:18 Greining Íslandsbanka telur að Seðlabankinn muni halda stýrivöxtum óbreyttum.
Greining Íslandsbanka spáir því að peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að halda vöxtum sínum óbreyttum á næsta vaxtaákvörðunardegi bankans 2. júlí næstkomandi. Helstu rök fyrir spánni eru fjórar. Í fyrsta lagi er fyrirhugað að taka fyrstu skref í fleytingu krónunnar seint á þessu ári og vill peningastefnunefnd bankans fara með háa vexti inn í það ferli. Meðlimir nefndarinnar hafa lýst því yfir að það yrði afar óheppilegt og kostnaðarsamt að þurfa að hækka vexti á þeim tíma eftir að hafa lækkað þá of mikið í aðdraganda flots. Í öðru lagi hefur gengi krónunnar lækkað um 3,3% frá síðasta vaxtaákvörðunardegi bankans en gengisstöðugleiki er meginmarkmið peningastefnunnar. Gengi krónunnar er nú komið töluvert undir það sem peningastefnunefndin hafði áður talið ásættanlegt. Í þriðja lagi hefur verðbólgan hækkuð frá síðasta vaxtaákvörðunarfundi bankans. Hún hefur líka verið meiri núna á öðrum ársfjórðungi en Seðlabankinn spáði. Verðbólgan er nú 12,2% en var 11,6% við síðustu vaxtaákvörðun. Í fjórða lagi telur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) að ekki sé svigrúm fyrir frekari vaxtalækkun nú. Peningastefnunefndin hefur margítrekað að AGS sé ráðgefandi aðili sem hún hlusti á og virðast rök sjóðsins hafa verið ofaná varðandi síðustu vaxtaákvörðun bankans. Líklegt er að nefndin muni með viðlíka hætti taka tillit til sjónarmiða sjóðsins nú.Lítið breyttir vextir út árið Varðandi stýrivaxtaþróun litið til lengri tíma þá má vænta þess að peningastefnunefndin ákveði að halda vöxtum háum þ.e. nálægt núverandi vaxtastigi í gegnum flot krónunnar. Stutt er í að þetta ferli hefjist skv. yfirlýsingu bæði Seðlabankans og AGS. Í því ljósi er ólíklegt að bankinn lækki vexti svo neinu nemi fyrr en á næsta ári. Greiningin útilokar þó ekki að bankinn muni bregða fyrir sig einni hóflegri vaxtalækkun til viðbótar á þessu ári og reiknar hún með sú lækkun komi til framkvæmda í ágúst. Að lokum segir greinigin að stýrivextir bankans verði nánast óbreyttir fram til loka fyrsta ársfjórðungs næsta árs.
Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira