Eimskip sýknað af kröfu Baldurs Guðnasonar 3. júlí 2009 13:37
Eimskip var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag sýknað af kröfu Baldurs Guðnasonar, fyrrverandi forstjóra þess, um greiðslu launa í tvö ár, allt til loka febrúar 2010. Byggir sýknan á því að Baldur hafi misnotað aðstöðu sína og því beri að ógilda starfslokasamning við hann. Í tilkynningu segir að Baldur krafðist þess að viðurkenndur yrði réttur hans gagnvart Eimskip til óskertra launa, orlofslauna og lífeyrissjóðsframlaga frá 1. maí 2008 til og með 28. febrúar 2010 á grundvelli viðauka við starfssamning. Mánaðarlegar greiðslur hefðu verið um 56.520 evrur á mánuði, þ.e. laun, orlof og lífeyrisframlag. Miðað við gengi evru í dag er um 10 milljónir að ræða á mánuði í tæp 2 ár eða ríflega 240 milljónir kr. Eimskip byggði sýknukröfu sína m.a. á því að ráðningarsamningi Baldurs hafi verið rift, að hann hafi beitt svikum við gerð viðauka á starfssamningi, en einnig var byggt á 33. gr. og 36. gr. samningalaga, þ.e óheiðarleika og ósanngirni af hálfu Baldurs. Loks byggði félagið varnir sínar á því að forsendur fyrir viðauka við ráðningarsamning Baldurs hafi brostið. Héraðsdómur féllst á það með Eimskip að Baldur hefði, gegn betri vitund, misnotað aðstöðu sína og bæri því að ógilda samninginn á grundvelli 30. gr. laga nr. 7/1936, og féllst á sýknukröfu félagsins.
Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Sjá meira