Skuldatryggingaálag á ríkissjóð fer stöðugt lækkandi 25. ágúst 2009 10:10
Skuldatryggingaálagið á íslenska ríkið hefur stöðugt farið lækkandi allan ágústmánuð og Í morgun stóð álagið í 468 punktum. Til samanburðar má nefna að í upphafi júlímánaðar stóð álagið í 660 punktum og hefur því lækkað um tæpa 200 punkta frá þeim tíma. Þrátt fyrir að skuldatryggingar á íslenska ríkið hafi lækkað töluvert að undanförnu er landið samt sem áður í fimmta sæti þeirra þjóða sem mest er talin hætta á að lendi í gjaldþroti samkvæmt lista sem CMAvision birtir daglega. Hinsvegar hafa líkurnar sem taldar eru á þjóðagjaldþroti Íslands einnig minnkað töluvert samkvæmt listanum og eru nú um 27%. Í byrjun júlí stóðu þessar líkur í tæpum 37%. Þegar álagið var sem hæst í vetur nam það vel yfir 800 punktum svo að segja má að landið sé á réttri leið hvað þetta varðar. Skuldatryggingaálag á ríkissjóð í 468 punktum samsvarar því að reiða þurfi fram tæp 4,7% af nafnverði skuldabréfs til að tryggja eiganda þess gegn greiðslufalli næstu 5 árin. Sem fyrr segir er Ísland áfram í fimmta sæti hjá CMA yfir þær 10 þjóðir sem hafa hæsta skuldartrygginaálag í heiminum þrátt fyrir þessa miklu lækkun. Þetta skýrist af því að álagið hefur einnig farið lækkandi hjá hinum þjóðunum sem skipa listann. Sem dæmi má nefna að líkurnar á þjóðargjaldþroti Argentínu, sem trónir efst á listanum, eru nú metnar 63%. Í byrjun júlí voru líkurnar í 72%. Eins og áður hefur komið fram í fréttum hér á síðunni um málið má rekja lækkunina á álaginu á ríkissjóð m.a. til umsóknar um aðildarviðræður við ESB, endurskipulagningu bankanna og nú síðast líkur á að Icesave málinu sé að ljúka. Í síðustu viku kom fram jákvætt mat frá matsfyrirtækinu Moody´s um Icesave samkomulagið.
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira