Heildarútlán Íbúðalánasjóðs dragast saman um 7% Gunnar Örn Jónsson skrifar 14. ágúst 2009 17:07
Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs rúmlega 2,4 milljörðum króna í júlí. Þar af voru rúmir 1,7 milljarðar vegna almennra lána og tæpar 700 milljónir vegna leiguíbúðalána. Heildarútlán sjóðsins drógust því saman um rúm 6,9 % frá fyrri mánuði. Meðalútlán almennra lána voru um 10,1 milljón króna í júlí sem er um 5% lækkun frá fyrri mánuði. Alls lánaði Íbúðalánasjóður um 8 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi sem er um 15% minna en á fyrsta fjórðungi ársins. Heildarútlán fyrstu sex mánuði ársins voru því um 17,4 milljarðar en það eru um 30% minni útlán en á fyrstu sex mánuðum ársins 2008. Þann 17. júlí birti Íbúðalánasjóður endurskoðaða áætlun um útgáfu, útboð íbúðabréfa og greiðslur Íbúðalánasjóðs fyrir árið 2009. Sjóðurinn áætlar að gefa út íbúðabréf að nafnverði 28-32 milljarða króna, sem er lækkun um 5-6 milljarða frá fyrri tölum. Áætlað er að ný útlán sjóðsins verði 36-40 milljarðar króna á þessu ári sem er lækkun um 5-7 milljarða frá fyrri áætlun. Íbúðalánasjóður áætlar að greiða lánardrottnum sínum 60-64 milljarða króna á árinu 2009.Umsóknum vegna greiðsluerfiðleika fækkar Á öðrum ársfjórðungi bárust 885 umsóknir vegna greiðsluerfiðleika sem eru um 6% færri umsóknir en á fyrsta ársfjórðungi. Á fyrstu sex mánuðum ársins hafa því borist 1827 umsóknir sem er veruleg aukning frá sama tímabili ársins 2008. Úrræði vegna greiðsluvanda eru samningar, skuldbreyting vanskila, frestun á greiðslum, lenging lána og greiðslujöfnun. Frá því sjóðurinn fór að bjóða upp á greiðslujöfnun fasteignaveðlána hafa verið afgreiddar 387 umsóknir. Heildarvelta íbúðabréfa í júlí nam rúmum 122 milljörðum sem er 62% meiri velta en í fyrri mánuði. Heildarvelta bréfanna nemur 530 milljörðum það sem af er árinu 2009.
Mest lesið Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira