Ríkið semur um milljarð evra í skuldabréfum í Lúxemborg 21. desember 2009 10:35
Samningar um kaup ríkisins af Seðlabanka Lúxemborgar á íslenskum ríkisskuldabréfum og breskum skuldabréfum sem voru áður í eigu Landsbankans að upphæð ríflega einn milljarður evra eru á lokasprettinum.Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra segir að með þessum samningum muni skilanefnd Landsbankans fá aðgang að kröfum í dótturfélag bankans í Lúxemborg. Þar er um að ræða kröfur upp á nokkra tugi milljarða kr. sem síðan myndu væntanlega nýtast til að lækka Icesave-skuldbindingar ríkisins.„Stóru íslensku bankarnir þrír voru alllir með dótturfélög í Lúxemborg. Það er búið að ganga frá málum Glitnis og Kaupþings þar í landi en eftir standa skuldir Landsbankans," segir Gylfi. „Þar er um að ræða skuldir við Seðlabanka Lúxemborgar sem var fulltrúi Seðlabanka Evrópu í viðskiptunum við Landsbankann."Fram kemur í máli Gylfa að tvö veð hafi verið fyrir lántöku Landsbankans í þessum viðskiptum. Annarsvegar er um að ræða íslensk ríkisskuldabréf í krónum sem metin eru á um 900 milljónir evra eða um 165 milljarða kr. og hinsvegar skuldabréf sem Landsbankinn í London gaf út og eru í pundum eða öðrum gjaldmiðlum.„Okkur finnst mikilvægt að fá þessi ríkisskuldabréf heim og munum í staðinn gefa út skuldabréf í evrum til Seðlabankans í Lúxemborg," segir Gylfi. „Við gætum síðan vel hugsanlega selt ríkisskuldabréfin á markaði hérlendis."Að sögn Gylfa er nú verið að semja um gengið og vaxtakjörin í þessum samningum en hann telur að sú vinna sé nú á lokasprettinum. Það hafi hinsvegar flækt málin að dótturfélag Landsbankans í Lúxemborg er í gjaldþrotameðferð þar í landi. Hún fari eftir þarlendum lögum og reglum og eigi Íslendingar ekki aðkomu að henni.„Með þessum samningum nú breytist sú staða og Landsbankinn fær greitt af kröfum sínum í þrotabú dótturfélagsins," segir Gylfi.
Mest lesið Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Viðskipti erlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Sjá meira