Heimilin herða sultarólina, ferðamenn eyða meiru 14. september 2009 12:13
Lítið lát er á samdrætti einkaneyslu hérlendis ef marka má nýbirtar tölur um kortaveltu og veltu í smásöluverslun. Virðast heimilin skera við nögl flest annað en brýnustu nauðsynjar þessa dagana. Hinsvegar eyða ferðamenn fé á landinu sem aldrei fyrr. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að samkvæmt tölum Seðlabankans var innlend kreditkortavelta í ágúst 24% minni að raunvirði en á sama tíma í fyrra, og erlend kreditkortavelta dróst saman um helming á tímabilinu. Minni breytingar urðu hins vegar á debetkortaveltu á sama tíma. Ef tekin er saman kreditkortavelta í heild og debetkortavelta í innlendum verslunum kemur í ljós að samdráttur í slíkri kortaveltu í ágúst var 16,5% frá sama mánuði í fyrra. Fylgni breytinga í kortaveltu, reiknað með þessum hætti, og einkaneyslu er veruleg. Sé tekið mið af þróun í júlí og ágúst teljum við að samdráttur í einkaneyslu á 3. fjórðungi ársins gæti reynst á bilinu 12 - 15% frá sama tíma í fyrra. Til samanburðar reyndist samdráttur einkaneyslu 17% á 2. fjórðungi ársins og 23% á fyrsta ársfjórðungi samkvæmt nýlega birtum tölum Hagstofu. Það virðist því eitthvað vera að draga úr samdrættinum þó að hann sé enn verulegur. Í tölum Seðlabanka er einnig gagnleg sundurliðun á kortanotkun erlendra aðila hér á landi. Kortanotkun útlendinga reyndist 90% meiri í krónum talið í ágúst en á sama tíma árið 2008, og er það í takti við þróunina það sem af er ári. Fróðlegt er að bera saman þessa kortanotkun og kortanotkun Íslendinga á erlendri grundu. Frá því Seðlabankinn hóf að taka saman tölur um kortaveltu erlendra aðila í september 2002 og fram til maí síðastliðins var erlend velta Íslendinga ávallt meiri í mánuði hverjum en kortanotkun útlendinga hérlendis. Í júní snerist dæmið hins vegar við, og í júlí og ágúst reyndist kortanotkun útlendinga hér á landi u.þ.b. 3,7 milljörðum kr. meiri í hvorum mánuði en notkun Íslendinga erlendis. Þetta er sterk vísbending um að verulegur afgangur á þjónustujöfnuði sé í vændum á 3. ársfjórðungi, og telur greiningin að afgangurinn geti numið allt að 20 milljörðum kr.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira