Már og Arnór skipaðir seðlabankastjórar 26. júní 2009 16:22
Forsætisráðherra hefur skipað Má Guðmundsson í embætti Seðlabankastjóra til fimm ára frá og með 20. ágúst 2009 og Arnór Sighvatsson í embætti aðstoðarseðlabankastjóra til fjögurra ára frá og með 1. júlí 2009. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Forsætisráðuneytinu. Már Guðmundsson lauk BA prófi í hagfræði frá háskólanum í Essex auk þess sem hann stundaði nám í hagfræði og stærðfræði við Gautaborgarháskóla. Hann er með M-phil. gráðu í hagfræði frá háskólanum í Cambridge og stundaði þar doktorsnám. Már hefur frá árinu 2004 gegnt starfi aðstoðarframkvæmdastjóra peningamála- og hagfræðisviðs Alþjóðagreiðslubankans í Basel í Sviss. Hann starfaði áður í Seðlabanka Íslands í um tvo áratugi og þar af sem aðalhagfræðingur í rúm tíu ár. Már var efnahagsráðgjafi fjármálaráðherra frá 1988- 1991. Már hefur ritað fjölda greina og ritgerða um peninga- og gengismál og skyld efni. Arnór Sighvatsson lauk doktorsprófi í hagfræði frá North Illinois háskóla og hafði áður lokið BA í sagnfræði og heimspeki frá Háskóla Íslands og MA prófi í hagfræði frá North Illinois háskóla. Með námi starfaði Arnór við Hagstofu Íslands og kenndi við North Illinois háskólann ásamt doktorsnámi. Hann hóf störf í Seðlabanka Íslands árið 1990, var aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri hagfræðisviðs frá árinu 2004 og settur aðstoðarseðlabankastjóri árið 2009. Arnór var aðstoðarmaður framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, skrifstofu Norðurlanda, frá 1993 - 1995. Arnór er höfundur margra greina um peningamál og gengismál. Settur Seðlabankastjóri, Svein Harald Øygard, mun gegna því embætti uns Már Guðmundsson tekur við embættinu þann 20. ágúst næstkomandi.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira