Yfir 300 milljóna velta í Innovit hagkerfinu 26. ágúst 2009 10:33
Á aðalfundi Innovit sem fram fór í dag kom fram að heildarvelta Innovit sprotafyrirtækja muni fara yfir 300 milljónir árið 2009 og sköpuð hafa verið 106 ný störf. Í ársskýrslu félagsins sem kynnt var á fundinum kemur einnig fram að í það minnsta tólf ný fyrirtæki hafa verið stofnuð eftir þátttöku sína í Gullegginu, frumkvöðlakeppni Innovit. Í tilkynningu um fundinn segir að auk þess eru frumkvöðlar að vinna að undirbúningi að stofnun tíu fyrirtækja til viðbótar. Innan Innovit hagkerfisins teljast öll þau fyrirtæki sem Innovit hefur aðstoðað og hafa nýtt sér frumkvöðlakeppnina Gulleggið sem stökkpall við stofnun nýrra fyrirtækja á Íslandi. „Við hjá Innovit erum afar stolt af þessum árangri sem sýnir að með starfsemi okkar höfum við getað lagt hönd á plóg til uppbyggingar nýrra fyrirtækja og atvinnu á Íslandi," segir Andri Heiðar Kristinsson, framkvæmdastjóri Innovit. „Einungis einu ári eftir að Gulleggið var haldið í fyrsta sinn árið 2008 hefur velta fyrirtækja sem teljast til Innovit hagkerfisins vaxið frá 130 milljónum árið 2008 og tæplega þrefaldast á innan við ári. Við teljum að þetta sýni vel hversu öflugt einkarekið stuðningskerfi nýsköpunar er að verða á Íslandi"
Mest lesið Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Heimsins fyrsti billjónamæringur Viðskipti erlent Enn fjölgar aflýsingum Viðskipti innlent Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Viðskipti innlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Sjá meira