Glitnir og HAF stefna Exista vegna 5,9 milljarða í lánum 11. september 2009 08:47
Exista hafa borist stefnur frá Glitni banka hf. og HAF Funding 2008-1 Limited þar sem gerðar eru þær dómkröfur að Exista greiði félögunum samtals tæplega 5,9 milljarða króna vegna lánasamninga sem upphaflega voru gerðir við Glitni banka hf. Í tilkynningu segir að Exista muni taka til varna í báðum málum enda hefur félagið gert upp kröfur Glitnis banka hf. og tengdra félaga með skuldajöfnuði þar sem Exista á kröfur á Glitni banka hf. á grundvelli gjaldmiðlasamninga. Gjaldmiðlasamningar eins og þeir sem gerðir voru við Glitni banka hf. voru gerðir til að verjast gengissveiflum, meðal annars í íslensku krónunni, en Exista færði reikninga sína í evrum þar sem meirihluti eigna og skulda félagsins voru í erlendri mynt. Þótt Exista hafi með þessum hætti leitast við að verja eigið fé sitt þá hafði lækkun krónunnar ávallt neikvæð áhrif á eigið fé Exista. Exista hefur allt frá hruni íslenska fjármálakerfisins í október 2008 leitast við að ná samningum við skilanefnd Glitnis banka hf. um uppgjör gagnkvæmra krafna en hefur ekki getað sótt rétt sinn fyrir dómstólum vegna neyðarlaganna. "Telur Exista því jákvætt að málið sé nú komið í þann farveg að niðurstaða fáist fyrir dómstólum um slíkt uppgjör," segir í tilkynningunni
Mest lesið Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent 50+ konur eru framtíðin fyrir gjörbreyttan vinnumarkað Atvinnulíf Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Viðskipti innlent Methagnaður norska olíusjóðsins Viðskipti erlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Skordýr í dillinu Viðskipti innlent Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Sjá meira