Greiðslur í peningamarkaðssjóði skoðaðar í ráðuneytinu 6. október 2009 12:10
Til stendur, í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, að hefja athugun á tugmilljarða greiðslum nýju bankanna í peningamarkaðssjóði föllnu bankanna. Greiðslur bankanna í sjóðina geta kostað skattgreiðendur stórfé. Nýju Ríkisbankarnir vörðu ríflega 83 milljörðum króna í að kaupa upp bréf sem voru í peningamarkaðssjóðum bankanna. Lang mest fór í að kaupa bréf úr sjóðum Landsbankans. 63 milljarðar króna. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Misjafnt var hvernig peningamarkaðssjóðirnir voru saman settir. Fram hefur komið að í sjóðunum voru skuldabréf frá bönkunum sjálfum. Þau hafa rýrnað mjög að verðgildi. Til að mynda er búist við að innan við helmingur fáist hjá Kaupþingi, í mesta lagi um þriðjungur í gamla Glitni og fimm prósent í gamla Landsbanka. Þarna voru líka skuldabréf frá Milestone, Exista og Bakkavör, FL Group/Stoðum, Samson, Baugi, Atorku og Eglu. Þessi félög eru meira eða minna gjaldþrota eða í greiðslustöðvun. Óvíst er um heimtur. Fullyrt var á sínum tíma að uppkaupin hefðu farið fram á viðskiptalegum forsendum; það sagði til að mynda Björgvin G. Sigurðsson, þáverandi viðskiptaráðherra. Fram kom í Morgunblaðinu um helgina að byggt hefði verið á mati frá endurskoðunarfyrirtækjum. Ljóst sé að matið standist ekki raunveruleikann. Samkvæmt heimildum fréttastofu innan úr efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, stendur til að skoða þessi uppkaup ríkisbankanna á bréfum í peningasjóðunum. „Fara yfir málið," eins og það var orðað. Ekki fengust nákvæmar upplýsingar um þessa skoðun eða að hverju hún beinist. Þá mun lítið af gögnum vera til um málið í ráðuneytinu. Þó hefur fréttastofa heimildir fyrir því að fimmtánda október í fyrra, hafi verið til minnisblað í ráðuneytinu, þar sem gert var ráð fyrir um helmingur myndi endurheimtast úr sjóðum bankanna. Þá kynnu háar fjárhæðir, jafnvel milljarðar króna að lenda á herðum almennra skattgreiðenda, ef tap lendir á nýju bönkunum vegna þessara kaupa; en eigið fé þeirra gæti rýrnað vegna þess. Íslenska ríkið ætlar að leggja nýju bönkunum til hundruð milljarða króna í eigið fé.
Mest lesið Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Atvinnulíf Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Nýtt á Íslandi: Auglýsingalausn sem sameinar sjónvarp og samfélagsmiðla Samstarf Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Samstarf Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira