Fjárfestar hafa sýnt Securitas áhuga 5. september 2009 05:15 Úr myndasafni.
Nokkrir fjárfestar hafa haft samband við skiptastjóra þrotabús Fons og lýst yfir áhuga á að kaupa öryggisfyrirtækið Securitas. Fyrirtækið er verðmætasta innlenda eignin í þrotabúinu. Ekki hefur verið ákveðið hvort það verður auglýst til almennrar sölu eða tilboði í það einfaldlega tekið. Guðjón Ólafur Jónsson lögmaður hefur starfað með skiptastjóra að þrotabúinu. Hann segir menn hafa haft samband strax þegar Fons varð gjaldþrota og lýst yfir áhuga á að kaupa Securitas, sem og aðrar eignir. Þegar hefur hlutur Fons í sænskri ferðaskrifstofu verið seldur, sem og í einni danskri. Guðjón segir enn óljóst hvort Securitas verði sett í almenna sölu. „Skiptastjóri ákveður það, en það er líklegast að það gerist. Ákvörðun hefur ekki verið tekin, en líklegast er í stöðunni að það verði sett í eitthvert söluferli." Guðjón segir þó að ef menn komi með fulla vasa fjár og vilji kaupa fyrirtækið gæti það breytt stöðunni. Landsbankinn, eða NBI, gerði kröfu um fullgilt veð í Securitas. Það hefði þýtt að bankinn hefði getað leyst fyrirtækið til sín, eða tekið hagnaðinn af sölunni. Skiptastjóri hafnaði þeirri kröfu á skiptafundi, en NBI mótmælti því. Líklegast er að þeirri deilu verði skotið til dómstóla enda um háar fjárhæðir að ræða. Gangi krafa bankans ekki eftir verður hagnaði af sölunni dreift til allra kröfuhafa samkvæmt gjaldþrotalögum. Ákvörðun um hvernig að sölu Securitas verður staðið verður tekin nú með haustinu. Guðjón Ólafur segir að möguleg málshöfðun vegna veðs í fyrirtækinu eigi ekki að hafa áhrif á slíkt ferli. Talið er að kröfur í þrotabú Fons nemi um tuttugu milljörðum króna. Óljóst er hverjar eignir félagsins eru, en þær gætu numið um tíu til tólf milljörðum króna, þar af um fjórum milljörðum í reiðufé. Ekki náðist í skiptastjóra, Óskar Sigurðsson, við gerð fréttarinnar.kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira