William Fall: Ætlar að gefa vangoldin laun til góðgerðamála 23. nóvember 2009 19:36 William Fall fyrir hrun.
Fyrrum bankastjóri Straums, William Fall, sagði í viðtali við Kastljós í kvöld að hann mun gefa launakröfu sína, sem hann hefur gert í þrotabú Straums, til góðgerðarmála hér á landi verði hún samþykkt. Um er að ræða 640 milljón króna launakröfu sem hann krefst af þrotabúinu en málið hefur verið þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur. Spurður hvort það sé eðlilegt að hann geri slíka kröfu í þrotabúið, í ljósi þess að bankinn fór í þrot undir hans stjórn, segir William að málið verði að meta út frá tvennskonar forsendum. Annarsvegar lagalegum, og sjálfur telur hann lagaleg rök fyrir því að fá kröfuna samþykkta. Og svo þarf að skoða málið út frá siðferðislegum forsendum, sem eru talsvert flóknari að sögn Williams. Hann segist ekki vilja hagnast á því ástandi sem hér ríkir, þess vegna hafi hann ákveðið að gefa peninginn í góðgerðarmál, verði krafan samþykkt. Spurður hvort hann sé sammála því að Straumur hafi verið þjóðnýttur segir William að bankinn hafi verið kominn í þrot. Forsvarsmenn bankans leituðu því ásjár Seðlabanka Íslands sem síðar tók ákvörðun um að þjóðnýta bankann í heild sinni. Hann segir ákvörðun Seðlabankans hafa verið mjög sársaukafulla fyrir hann sjálfan. Hann segir það búið og gert og því tími til þess að horfa fram á við. Að lokum sagði William að hann vonaði að Íslendingar dæmdu ekki íslenskan fjármálamarkað út frá því sem er að gerast nú. Hann bendir á að Íslands búi yfir gífurlega hæfileikaríku fólki í fjármálastarfseminni hér á landi og sama fólk geti skilað landinu aftur út í alþjóðleg viðskipti. Hann segir kerfið eins og það var þó hafa verið of stórt og of áhættusækið. Það sé augljóst að fjármálamarkaðurinn hér á landi verði mun minni í sniðum en hann var áður að sögn Williams.Yfirlýsingu frá honum má lesa hér fyrir neðan.
Mest lesið Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Viðskipti innlent Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Atvinnulíf Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Viðskipti innlent Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Sjá meira