Erlend hlutabréf á bakvið eignahækkanir lífeyrissjóðanna 11. september 2009 11:55
Hrein eign lífeyrissjóðanna jókst nokkuð í júlí vegna góðrar ávöxtunar af erlendri hlutabréfaeign og erlendum hlutabréfasjóðum. Var hrein eign sjóðanna til greiðslu lífeyris 1.762 milljarða kr. í lok mánaðarins og hafði þá aukist um 25,5 milljarða kr. í mánuðinum. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að sjóðirnir áttu í lok mánaðarins samanlagt 387 milljarða kr. í erlendum hlutabréfum og hlutabréfasjóðum og hækkaði sú eign um 24,5 milljarða kr. í mánuðinum eða um 6,7%. Afar gott gengi hefur verið á ýmsum erlendum hlutabréfamörkuðum undanfarið og hækkaði t.d. Dow Jones hlutabréfavísitalan um 9,2% í mánuðinum, S&P 500 vísitalan um 8,6% og Nasdaq um 8,8%. Vægi erlendra hlutabréfa og hlutabréfasjóða af hreinni eign til greiðslu lífeyris var um 22% í lok júlí sem er nokkuð hátt sögulega séð og nýtist þeim vel nú þegar erlendir markaðir taka vel við sér. Talsverð óvissa er enn um endanlegt mat á eignum lífeyrissjóðanna eftir bankaáfallið undir lok síðastliðins árs. Af þeim sökum ber að taka mati á hreinni eign sjóðanna með fyrirvara. Stærsta áfallið fyrir sjóðina var af innlendri hlutabréfaeign þeirra og hefur sú eign verið færð niður. Í lok september í fyrra áttu sjóðirnir 151 milljarð kr. í innlendum hlutabréfum og hlutabréfasjóðum. Um áramótin síðustu var sú staða komin í 35 milljarða kr. og hafði lækkað um 116 milljarða kr. frá því í septemberlok. Eign sjóðanna í innlendum hlutabréfum og hlutabréfasjóðum var nú í lok júlí 36 milljarðar kr. eða 2% af eign sjóðanna til greiðslu lífeyris. Staða þeirra á þeim markaði er því sáralítil enda eru afar fá félög skráð á þeim markaði. Í júlílok hafði hrein eign rýrnað um 1,6% að nafnvirði frá sama mánuði árið 2008. Sé hins vegar tekið mið af verðbólgu minnkaði hrein eign að raunvirði um tæplega 13% á tímabilinu. Ávöxtun sjóðanna var væntanlega talsvert rýrari en þessar tölur gefa til kynna, þar sem iðgjöld sjóðsfélaga eru mun meiri en útgreiðsla lífeyris. Til dæmis má nefna að árið 2007 námu iðgjöld umfram útgreiðslu lífeyris rúmum 93 milljörðum kr., sem samsvarar u.þ.b. 7,8 milljarðs kr. hreinu innflæði í mánuði hverjum.
Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira