Frumvarp um tryggingasjóð breytir engu um Icesave 22. desember 2009 15:21 „
Breytingar á lögum um Tryggingasjóðs innstæðueigenda og fjárfesta (TIF) sem breyta engu um ábyrgð gagnvart innstæðueigendum Landsbankans og aðeins varða tryggingar innstæðueigenda í öðrum bönkum sem starfandi eru á Íslandi falla því eðli málsins samkvæmt ekki undir ákvæði þessarar greinar."Þetta segir í tilkynningu frá efnahags- og viðskiptaráðuneytinu sem birt er á vefsíðu stjórnarráðsins. Þar segir að fjölmiðlar hafa í dag fjallað um skýrslu bresku lögmannstofunnar Mischon de Reya sem vann álit fyrir fjárlaganefnd vegna umræðna á Alþingi um frumvarp fjármálaráðherra varðandi ríkisábyrgð á lántöku Tryggingasjóðs innstæðueigenda og fjárfesta (TIF).Fullyrt hefur verið að frumvarp efnahags- og viðskiptaráðherra um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta geti ekki orðið að lögum þar sem lögmannsstofan komist að þeirri niðurstöðu að lánasamningur TIF við breska og hollenska fjármálaráðuneytið leyfi ekki að íslenska ríkið stofni nýjan innstæðutryggingasjóð. Hér gætir mikils misskilnings á eðli frumvarpsins um TIF og niðurstöðu Mischon de Reya sem vert er að leiðrétta.Fyrst ber að geta þess að lögmannsstofan kemst að þeirri niðurstöðu að skv. grein 12.1.10 í samningi TIF valdi það samningsrofi ef tryggingasjóðurinn yrði leystur upp eða honum lokað eða ef einhver breyting er gerð á íslenskum lögum sem ylli því að TIF gegndi ekki hlutverki tryggingasjóðs innstæðueigenda í Landsbanka Íslands hf (LÍ). Breytingar á lögum um TIF sem breyta engu um ábyrgð gagnvart innstæðueigendum LÍ og aðeins varða tryggingar innstæðueigenda í öðrum bönkum sem starfandi eru á Íslandi falla því eðli málsins samkvæmt ekki undir ákvæði þessarar greinar.Í öðru lagi sést glögglega á frumvarpi efnahags- og viðskiptaráðherra að í því eru ekki fólgnar breytingar á hlutverki TIF gagnvart innstæðueigendum þar sem þegar hefur myndast greiðsluskylda, þar með töldum LÍ. Öll ákvæði laganna sem varða þessar innstæður verða enn í fullu gildi.Ætlunin að skipta tryggingasjóðnum í tvær deildir. A-deild verður fjármögnuð með iðgjöldum starfandi innlánsstofnana og verður því bakhjarl fjármálakerfisins til framtíðar. B-deildin tekur við núverandi skuldbindingum sjóðsins og starfar samkvæmt gildandi lögum, að undanskildum nánar tilteknum ákvæðum.Verður B-deild lögð niður þegar greiðslu skuldbindinga hennar er lokið vegna ábyrgða sem fallið hafa á innstæðudeild sjóðsins fyrir gildistöku laganna. Ljóst er því að engar breytingar verða á hlutverki og skyldum TIF gagnvart innstæðueigendum í LÍ.Þær breytingar sem boðaðar eru í frumvarpi um innstæðutryggingar breyta engu um hlutverk núverandi tryggingasjóðs en stofnun nýrrar deildar tryggingasjóðsins og fjármögnun hennar verður almenningi og innlánsstofnunum ótvírætt til hagsbóta. Kröfuhafar í þrotabú föllnu bankanna eiga ekki síður mikið undir því að rekstur nýju bankanna og fjármögnun með innlánum standi traustum fótum. Engin ástæða er því til annars en að ætla að kröfuhafar fagni því að innstæðutryggingakerfið verði treyst í sessi.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira