Unga fólkið bætist í hóp svartsýnna landsmanna 30. júní 2009 13:28
Væntingar neytenda drógust saman í júní annan mánuðinn í röð. Mælist Væntingavísitala Capacent Gallup sem birt var í morgun nú 12% lægri en hún var í fyrri mánuði og stendur í 26,4 stigum. Vísitalan mælir væntingar neytanda til efnahags- og atvinnulífsins. Væntingar ungs fólks dragast mikið saman. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að þetta komi varla á óvart í ljósi þess að verðbólga hefur aukist á nýjan leik, gengi krónunnar hefur haldið áfram að lækka, skattahækkanir hafa verið kynntar til sögunnar og óvissa ríkir varðandi Icesave samningana. Lækkun á vísitölunni nú, annan mánuðinn í röð, bendir til þess að svartsýni virðist nú vera að festa sig í sessi á nýjan leik meðal neytenda eftir að hafa verið á undanhaldi samfellt síðan í febrúar. Það sem vegur þyngst í lækkun vísitölunnar nú er lækkun á væntingum yngsta aldurshópsins sem hingað til hefur verið hvað bjartsýnastur. Væntingar fólks á aldrinum 16- 24 ára dragast saman um 27 stig frá fyrri mánuði en líklega er að þar hafi áhrif slæmar horfur varðandi sumarvinnu fyrir námsfólk á þessum aldri. Undirvísitala sem mælir væntingar um að aðstæður batni eftir 6 mánuði lækkar um 7,5 stig frá fyrri mánuði, mat á núverandi aðstæðum í efnahagslífinu lækkar um 8 stig og mat á atvinnuástandi lækkar um 3,4 stig á milli mánaða. Vísitala Capacent Gallup fyrir fyrirhuguð stórkaup á bifreiðum, íbúðum og utanlandsferðum sem birt er ársfjórðungslega hækkar lítillega eða um 1,8 stig frá síðustu mælingu sem fór fram í mars. Bendir það til þess að fleiri en áður geta nú hugsað sér að ráðast í stórkaup á næstu 6 mánuðum. Vístölur fyrir fyrirhuguð stórkaup eru þó enn í grennd við söguleg lágmörk og hafa skal í huga að mikill meirihluti aðspurðra telur það enn mjög ólíklegt að ráðist verði í nokkur stórkaup á næstu 6 mánuðum.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Sjá meira