Viðskipti innlent

Eftirlaunasjóði atvinnuflugmanna skilað

Fjármálaráðuneytið hefur skilað Eftirlaunasjóði félags íslenskra atvinnuflugmanna (EFÍA) aftur í hendur stjórnar sjóðsins samkvæmt tilkynningu frá Félagi íslenskra atvinnuflugmanna.

 

Stjórnin var sett af með bréfi frá fjármálaráðuneytinu þann 17. mars síðasliðinn og var sjóðnum ásamt fleiri sjóðum skipaður umsjónaraðili og um það var mikil umfjöllun í fjölmiðlum.

 

„FÍA hefur gagnrýnt mjög hvernig að yfirtöku sjóðsins var staðið og fagnar því að þessu óvissutímabili sé lokið," segir í tilkynningu.

 

Stjórn sú sem skipuð var á ársfundi EFÍA í lok maí hefur tekið við sjóðnum að nýju úr hendi umsjónaraðila. Er það óbreytt stjórn frá fyrra ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×