Farið verður yfir tekjur af eignum sem átti ekki að færa 13. júní 2009 05:00 Finnski bankasérfræðingurinn Kaarlo Jännäri hefur sagt áríðandi að ljúka uppgjöri nýju og gömlu bankanna. Hann flytur hér erindi hjá Samtökum fjármálafyrirtækja í maí.Fréttablaðið/GVA
Fjármálaeftirlitið birtir á mánudag ákvörðun sína um hversu langan frest stjórnvöld, skilanefndir og kröfuhafar gömlu bankanna fá til þess að ljúka uppgjöri vegna tilfærslu eigna milli nýju og gömlu bankanna. Stefnt hefur verið að því að ljúka uppgjörinu fyrir mánaðamót, en fjármálaráðuneytið á í viðræðum við skilanefndir bankanna og ráðgefandi fyrirtæki Morgan Stanley og Hawkpoint. Á vettvangi kröfuhafa og skilanefnda stendur yfir áreiðanleikakönnun á verðmati eigna bankanna sem PriceWaterhouseCoopers (PWC) innti af hendi, en samkvæmt heimildum blaðsins er búist við að sú vinna haldi áfram út næstu viku. Í punktum af fundi skilanefndar Kaupþings með fulltrúum kröfuhafa sem birtir hafa verið á vef nefndarinnar kemur fram að í virðismatsskýrslu PWC sé staðfest að færðar hafi verið yfir til nýju bankanna eignir sem betur hefðu átt heima í þrotabúum gömlu bankanna. Fyrr á árinu var upplýst að eignir hefðu í einhverjum tilvikum verið færðar aftur yfir í þrotabú gömlu bankanna, en á þeim tíma óttuðust sumir kröfuhafar að verið væri að skila verðlausum eignum. Í punktum skilanefndar Kaupþings kemur fram að farið verði yfir allar færslur sem tengist slíkum eignum sem ekki hefði átt að flytja yfir og uppgjör leiðrétt á milli bankanna, en Fjármálaeftirlitið eigi eftir að staðfesta leiðréttingarnar.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira