Birna svarar: Leiðrétting en ekki niðurfelling skulda 1. september 2009 10:33 „
Í raun ganga hugmyndir Íslandsbanka út á leiðréttingu á höfuðstól en ekki beina niðurfellingu. Aðferðafræðin gengur út á að skipta þessum lánum yfir í óverðtryggð lán í íslenskum krónum. Við gerum okkur grein fyrir að vextir á óverðtryggðum lánum verða líklegast hærri til að byrja með." Þetta segir Birna Einarsdóttir bankastjóri Ísalandsbanka í svari við spurningum visir.is um útfærslur bankans á aðstoð við þá sem eiga í vandamálum með skuldir sínar. „Til þess að létta undir með heimilum myndi bankinn bjóða þeim uppá að greiðslujafna þessi lán fyrstu þrjú árin með svokölluðu teygjuláni sem þýðir að afborganir lækka tímabundið, líkt og á sér stað í dag í greiðslujöfnun verðtryggðra og gengistryggðra húsnæðislána," segir Birna. Hverjir fá að njóta leiðréttingar ef til hennar kemur eða koma þeir skuldugustu eingöngu til greina? „Okkar hugmyndir ganga útá leiðréttingu fyrir alla viðskiptavini sem eru með gengistryggð og verðtryggð húsnæðislán gegn því að viðkomandi skipti yfir í óverðtryggð lán í íslenskum krónum. Það er viðskiptavinur getur valið hvort hann fer þess leið eða ekki. „ Er eðlilegt að þeir sem tóku mikla áhættu í lántökum sínum njóti sömu réttinda og þeir sem fóru varlega, t.d. ungt fólk og lágtekjufólk sem í raun gat ekkert gert í þeim vandamálum sem það stendur frammi fyrir? „ Við erum að upplifa óvenjulega tíma og þurfum því að fara óvenjulegar leiðir. Sú leið sem bankinn er að skoða felur ekki í sér afskriftir skulda og í henni felst ekki mat á því hvort um óhóflega skuldsetningu vegna íbúðahúsnæðis hafi verið að ræða eða ekki, lausnin er hugsuð sem almennt úrræði. Komi til annarra úrræða, til dæmis frá hendi hins opinbera, munu þeir viðskiptavinir sem ákveða að fara þessa leið hafa sama rétt til þeirra úrræða og áður. Fyrir þá aðila sem þessi lausn reynist ekki duga, verður áfram boðið uppá sértækar lausnir sem hafa það að markmiði að skoða stöðu hvers og eins og leita úrræða á þeim grunni, til að mynda greiðsluaðlögun." Teljið þið að það sé ekki brot á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar ef fólki verður mismunað út frá skuldastöðu sinni? „Eins og fyrr segir er um almenna úrlausn að ræða fyrir alla viðskiptavini sem eru með verðtryggð og gengistryggð húsnæðislán og óska eftir því að skipta þeim yfir í óverðtryggð húsnæðislán í krónum. Því ekki um mismunun að ræða ." Ef til skuldaniðurfellingar kemur hjá Íslandsbanka, þurfa ekki allir viðskiptabankarnir að fylgja fordæmi Íslandsbanka og gæti það ekki reynst erfitt? „Ekki er um að ræða skuldaniðurfellingar heldur leiðréttingu á höfuðstól gegn því að viðskiptavinurinn velji að fara úr gengistryggðu eða verðtryggðu láni yfir í óverðtryggt lán. Við teljum mikilvægt að sem mest samræmi sé á milli þeirra leiða sem bankar og aðrar fjármálastofnanir bjóða viðskiptavinum sínum og höfum lagt áherslu á samstarf um þessi mál, þó þannig að ekki sé farið gegn samkeppnissjónarmiðum."
Mest lesið Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Viðskipti innlent Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Fleiri fréttir Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Sjá meira