Ekki ráðð í stað skilanefndamanna sem fóru Sigríður Mogensen skrifar 3. ágúst 2009 18:55 Gunnar Andersen segir að ekki eigi að ráða fyrir mennina sem fóru. Mynd/ Stefán.
Ekki á að ráða aðra menn inn í stað þeirra sem fjármálaeftirlitið hefur vikið úr skilanefndum bankanna. Þá hefur ekki komið til tals að víkja manni úr skilanefnd Kaupþings, sem starfaði við lögfræðiráðgjöf hjá gamla bankanum. Þetta segir Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Fjármálaeftirlitið hefur vikið fjórum mönnum úr skilanefndum bankanna og er þeim gert að hætta um miðjan ágúst. Þeir eiga það sameiginlegt að hafa gengt ábyrgðarstörfum hjá gömlu bönkunum fyrir hrun. Mennirnir eru: Ársæll Hafsteinsson og Sigurjón Geirsson í skilanefnd Landsbankans. Ársæll var framkvæmdastjóri lögfræðisviðs gamla Landsbankans og Sigurjón innri endurskoðandi bankans. Guðni Níels Aðalsteinsson í skilanefnd Kaupþings sem var framkvæmdastjóri fjárstýringar hjá Kaupþingi. Og að lokum Kristjón Óskarsson í skilanefnd Glitnis en hann var yfirmaður viðskiptabankasviðs Glitnis. Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir að ekki eigi að ráða aðra í nefndirnar í staðinn fyrir þá sem hættir eru: Þess má geta að Jóhannes Rúnar Jóhannsson, sem situr í skilanefnd Kaupþings, starfaði við lögfræðiráðgjöf hjá bankanum frá árinu 2007. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafa þessar fyrirhuguðu breytingar á skilanefndum valdið töluverðum titringi meðal kröfuhafa gömlu bankanna. Fulltrúar stærstu kröfuhafa gamla Landsbankans, sem eru meðal annars breska og hollenska ríkið, eru samkvæmt heimildum fréttastofu orðnir langþreyttir á breytingum sem hafa orðið í skilanefnd bankans og umgjörðinni um skilanefndina. Kröfuhafar eru í miklum og stöðugum samskiptum við skilanefndir bankanna enda er það hlutverk nefndanna að hámarka virði eigna gömlu bankanna fyrir kröfuhafa.
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira