Brýnt fyrir þjóðarbúskapinn að lækka stýrivexti 17. apríl 2009 16:50
Brýnt er fyrir þjóðarbúskapinn að stýrivextir verði lækkaðir verulega og peningastefnunefnd hefur þegar stigið fyrstu skrefin í þá átt með stýrivaxtaákvörðunum sínum 19. mars og 8. apríl. Engu að síður eru háir stýrivextir ennþá álitnir nauðsynlegir - þar til gerðar hafa verið ráðstafanir til að tryggja traustari efnahagsgrundvöll. Þetta sagði Svein Harald Öygard bankastjóri Seðlabankans í ræðu sinni á aðalfundi bankans nú síðdegis. Fram kom í máli hans að svo virðist sem dregið hafi úr verðbólguþrýstingi og verðbólga fari hratt minnkandi. Seðlabankinn væntir þess að verðbólga nálgist 2,5% verðbólgumarkmiðið snemma árs 2010. Þá fjallaði Svein Harald um gjaldeyrishöftin og sagði að þar sem gjaldeyrishöft hindri óheft útstreymi fjármagns eru þau óheppilegur en ómissandi liður í aðgerðum sem miða að því að vernda efnahagsreikninga og stuðla að sjálfbærum efnahagsbata. Þau skapa einnig aukið svigrúm til að lækka stýrivexti. Svein sagði að miðað við núgildandi áætlun ætti að vera hægt að ná fram fimm af meginforsendunum fyrir verulegri lækkun stýrivaxta á næstu mánuðum: 1. Áætlun um aðlögun ríkisfjármála næstu misserin verður hrint í framkvæmd og þarf að skapa traust á því að Íslendingar séu vel í stakk búnir til að takast á við skuldastöðu hins opinbera. Áætlunin verður í samræmi við góðan árangur Íslendinga á undanförnum árum, en þeir voru með næstlægstu opinberar skuldir í Evrópu fyrir fjármálakreppuna... 2. Ljúka þarf endurskipulagningu og endurfjármögnun bankakerfisins. Í öllum þróuðum ríkjum er það álitið skipta sköpum að reka skilvirkt bankakerfi. Rannsóknir benda til þess að starfhæft fjármálakerfi sé lykilforsenda langtíma hagvaxtar. Því ber að halda áfram samningaferlum í fjármálageiranum og endurskipulagningu og endurfjármögnun bankanna samkvæmt áætlun. Liður í því er að taka á áhættu er varðar verðtryggð lán og lán í erlendum gjaldeyri í nýju bönkunum. Góðu fréttirnar eru þær að mikilvægum undirbúningsaðgerðum er nú um það bil að ljúka. 3. Með minnkandi innlendri eftirspurn verða tiltækir fjármunir til að greiða niður uppsafnaðar skuldir þjóðarinnar og leggja drög að aukinni atvinnu í framtíðinni. Þegar er komið í ljós að útflutningur á vörum og þjónustu er orðinn meiri en innflutningur. Landið nýtur góðs af fiskiðnaði í fremstu röð í heiminum, ágætum forsendum ferðamannaiðnaðar, endurnýtanlegri orku og fyrirtækjum sem byggja á henni, og einkar fjölbreyttu efnahagslífi... 4. Þótt núverandi aðstæður innan lands sem utan gefi ekki ennþá færi á að aflétta gjaldeyrishöftum án þess að stofna stöðugleika í hættu metur Seðlabanki Íslands árangur þeirra reglulega og leitar leiða til að aflétta þeim í áföngum um leið og aðstæður leyfa. Seðlabankinn metur einnig sérstök úrræði sem gætu gert óþolinmóðustu fjárfestunum sem hafa verið bundnir af gjaldeyrishöftum kleift að skipta skuldabréfum sínum í íslenskum krónum með þeim hætti að ekki komi niður á gjaldeyrisforða bankans. . Samningaviðræðum um tvíhliða lán, öðrum samningaferlum og endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins ætti bráðlega að ljúka. Þegar í mars 2008 reyndi Seðlabanki Íslands að gera gjaldmiðlaskiptasamninga við aðra seðlabanka. Viðræður við seðlabanka þriggja Norðurlandaríkja leiddu til gjaldmiðlaskiptasamninga sem tilkynnt var um miðjan maí 2008. Þessir samningar eru nú í gildi og ég vil þakka norrænu seðlabönkunum fyrir samstarf þeirra."
Mest lesið Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur „Gerðu grín að okkur og kölluðu „litlu strákana með litina““ Atvinnulíf Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira