Innstæður greiddar tæpu ári eftir hrun 26. ágúst 2009 10:30
Skiptastjórar Kaupþing Singer og Friedlander hafa tilkynnt innstæðueigendum bankans á bresku eyjunni Mön, að þeir muni fá fyrsta hluta Kaupthing Edge innstæðna sinna greiddar þann 4. september næstkomandi, ellefu mánuðum eftir fall bankans. Það er breska ríkisútvarpið sem greinir frá þessu. Til að byrja með munu innstæðueigendurnir fá 22,1 pens fyrir hvert pund sem þeir lögðu inn í bankann. Síðar í september munu sparifjáreigendurnir síðan fá afganginn frá breska ríkinu í samræmi við tilskipun Evrópusambandsins um innstæðutryggingar. Singer og Friedlander var dótturfélag Kaupþings á Bretlandi og því gilda ekki sömu lög um ábyrgð íslenska ríkisins á innstæðum sparifjáreigenda og til að mynda með Icesave reikninga Landsbankans sem heyrðu undir útibú Landsbankans í London. Um það bil 75 prósent af sparifjáreigendum, það er að segja þeir sem höfðu lagt allt að 50 þúsund pund inn á reikninga hjá Kaupthing Edge munu fá innstæður sínar greiddar að fullu í september. Ólíklegt er talið að þeir sem ætluðu sér að ávaxta meira fé hjá bankanum fái meira fyrir sinn snúð en áðurnefnd 50 þúsund pund.
Mest lesið Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur María nýr stjórnarformaður SVEIT Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Fleiri fréttir Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Sjá meira