Skilanefnd Landsbankans fundar með kröfuhöfum Ingimar Karl Helgason skrifar 1. október 2009 12:45
Bretar og Hollendingar fylgjast náið með heimtum úr þrotabúi Gamla Landsbankans, en eignirnar fara allar upp í Icesave reikningana. Hvorir um sig eiga fulltrúa á kröfuhafafundi skilanefndar sem haldinn er í Lundúnum í dag. Heildareignir Landsbankans námu um mitt ár í fyrra hátt í 4.000 milljörðum króna, en síðan hrundi allt. Samkvæmt yfirliti frá skilanefnd bankans frá í sumar eru eignirnar metnar á 1.100 milljarða. Þar inni eru hátt í 300 milljarðar frá Nýja Landsbankanum. Innistæðukröfur reikningseigenda Icesave eru um 1.300 milljarðar. Vonast er til þess að sem mest innheimtist af eignum bankans upp í þetta; restin lendir á íslenskum skattgreiðendum, jafnvel ófæddum. Í reynd eru bresk og hollensk stjórnvöld þannig stærstu kröfuhafarnir í þrotabú gamla Landsbankans. Ríkin fylgjast enda vel með endurheimtum af eigum bankans. Lokaður fundur með kröfuhöfum er haldinn í Lundúnum í dag. Þar eiga Hollendingar og Bretar fulltrúa. Samkvæmt nýjasta yfirliti skilanefndarinnar á Nýi bankinn að láta þeim gamla í té 284 milljarða króna. Þetta er háð óvissu, það fer eftir virði innlendra viðskipta sem lentu í nýja bankanum, húsnæðisveðum hér á landi og fleiru líkt og málverkum í eigu bankans, sem sum eru þjóðargersemar. Hollendingum og Bretum þykir mikilvægt að sem best verð fáist fyrir þessar eignir.
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Allir Bónus vanilludropar innkallaðir Neytendur Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira