Fegrunaraðgerð í ríkisfjármálum er til að herða vaxtastigið 1. október 2009 08:37 „
Þótt látið sé að því liggja að aðgerðin sé fegrunaraðgerð á sviði ríkisfjármála er allt útlit fyrir að hún sé þvert á móti hugsuð til að herða á vaxtastiginu í landinu. Aðgerðin lyktar af því að hér sé verið að draga lausafé úr umferð til að gera stýrivexti Seðlabankans áhrifameiri og lyfta jafnframt upp langtímavöxtum." Þetta er álit greiningardeildar Nýja Kaupþings á boðuðum áformum ríkissjóðs um að auka við skuldabréfaútgáfu sína um 60 milljarða kr. fram til áramóta eins og Lánasýsla ríkisins tilkynnti um í vikunni. Greiningin fjallar um málið í Markaðspunktum sínum. „En eins og áður hefur komið fram í Markaðspunktum hafa vextir í bankakerfinu leitað talsvert undir stýrivexti Seðlabankans og raunar undir innlánsvexti bankans einnig. Alþjóðagjaldeyrissjóðnum hefur þótt vaxtalækkunarferli Seðlabankans ganga fram úr hófi og má telja öruggt að þeir leggi áherslu á að virkni Seðlabankavaxta verði aukin," segir í Markaðspunktunum „Líta má á þessa aðgerð sem annað skrefið í aðgerðaáætlun sem hófst fyrir skemmstu með tilkynningu um endurvakningu innstæðubréfaútgáfu Seðlabankans. Með því að "efla sjóðsstöðu ríkissjóðs í Seðlabanka Íslands" er í raun verið að taka krónurnar sem fást úr ríkisbréfaútboðinu úr umferð og læsa þær niðri í kjallara Seðlabankans - við hliðina á því fé sem fást mun með innstæðubréfaútgáfu Seðlabankans." Markaðspunktar fjalla um áætlanir Lánasýslunnar frá upphafi ársins en þá var gert ráð fyrir að fjárþörf ríkisins væri 145 milljarðar kr. Sú tala var síðar endurskoðuð í 177 milljarða kr. „Í Markaðspunktum höfum við spurt um hvernig þetta 32ja milljarða kr. gat muni verða brúað. Svar barst í gær í tilkynningu Lánasýslunnar en þar kom fram að ríkisbréf fyrir allt að 60 milljarða kr. verða gefin út fram til ársloka," segir greiningin. „Þetta er töluvert meira en sem nemur fyrrgreindu 32 milljarðar kr. gati. Þetta er hvorki meira né minna en 40% aukning miðað við upphaflega áætlun Lánasýslunnar." Aðgerðina útskýrir Lánasýslan þannig: "Í ljósi eftirspurnar á markaði eftir óverðtryggðum bréfum er stefnt að því að auka við útgáfuna um allt að 60 ma. kr. á árinu, ef markaðsaðstæður leyfa. Andvirði útgáfunnar verður varið til þess að efla sjóðstöðu ríkissjóðs í Seðlabanka Íslands."
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira