AGS: Minni samdráttur á Íslandi en áður var spáð 1. október 2009 12:33
Ljóst er orðið að samdrátturinn í íslenska þjóðarbúskapnum verður ekki jafn mikill í ár og fyrstu hagvaxtarspár eftir hrun bankanna í fyrra gerðu ráð fyrir. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS), sem í skýrslu sinni um íslenska hagkerfið í fyrra spáði því að hagkerfið myndi dragast saman um 9,6% í ár, birti nýja spá í morgun sem gerir ráð fyrir að hér á landi verði 8,5% samdráttur í ár. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að munurinn er enn meiri ef borið er saman við spá sjóðsins í apríl á þessu ári en þá var hann að spá því að hagkerfið myndi dragast saman um 10,6% í ár. Að hluta er ástæðan fyrir bættum horfum þær að samdrátturinn í heimsbúskapnum virðist ekki ætla að verða jafn mikill og fyrri spár gerðu ráð fyrir. Í spá sinni er AGS þannig umtalsvert bjartsýnni á heimsbúskapinn í ár en hann var í júlí s.l. Þannig spáir sjóðurinn að samdráttur í heimsbúskapnum verði að jafnaði um 1,1% á yfirstandandi ári en var áður að reikna með 1,4% samdrætti. Sjóðurinn spáir því að atvinnuleysi verði 8,6% hér á landi að jafnaði í ár en í spánni sinni í apríl s.l. reiknaði sjóðurinn með 9,7% atvinnuleysi í ár. Sjóðurinn er hins vegar svartsýnni nú hvað verðbólguþróun varðar enda hefur krónan verið öllu veikari á árinu en sjóðurinn áætlaði í spá sinni í upphafi árs. Spáir sjóðurinn því nú að verðbólgan í ár verði 11,7% samanborið við 10,6% í spá þeirra í apríl. Að hluta er ástæða þess að sjóðurinn er nú bjartsýnni á þetta ár í íslenskum þjóðarbúskap en áður að samdrátturinn er að færast aftar í tíman og yfir á næsta ár. Þannig er sjóðurinn nú að spá því að samdrátturinn í íslenskum þjóðarbúskap verði 2,0% á næsta ári en í aprílspánni reiknaði sjóðurinn með því að hér yrði 0,2% samdráttur á næsta ári. Sökum þessa reiknar sjóðurinn með því að atvinnuleysið aukist allnokkuð fram á næsta ár og verði þá 10,5% að jafnaði, en í aprílspánni reiknuðu þeir með því að það myndi draga úr atvinnuleysinu á milli þessara tveggja ára og að það yrði 9,3% á næsta ári. Reiknar sjóðurinn með því að verðbólgan muni hjaðna hratt á næstunni og verði að meðaltali 4,4% á næsta ári.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Sjá meira