Seðlabankinn fluttur undir nýtt ráðuneyti 1. október 2009 15:50
Í dag, 1. október, tekur efnahags- og viðskiptaráðuneyti til starfa á grunni viðskiptaráðuneytisins, þegar lög um breytingar á lögum um Stjórnarráð Íslands taka gildi. Í tilkynningu segir að í ráðuneytinu verður forræði efnahagsmála sem nú er bæði í forsætisráðuneyti og fjármálaráðuneyti. Í því fellst að málefni Seðlabanka Íslands verða nú í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu og heyra þá Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands undir sama ráðuneyti. Starfsemi efnahagsskrifstofu forsætisráðuneytisins flyst í dag til efnahags- og viðskiptaráðuneytisins. Þá flyst í dag hluti af efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins til efnahags- og viðskiptaráðuneytisins, en í fjármálaráðuneytinu verða áfram verkefni sem unnin hafa verið á efnahagsskrifstofu ráðuneytisins og tengjast fjárlagagerð og stjórn ríkisfjármála, svo sem tekjuáætlun fjárlaga og mat á tekjuáhrifum skattabreytinga. Málefni Hagstofu Íslands flytjast frá forsætisráðuneytinu til efnahags- og viðskiptaráðuneytisins í dag og við Hagstofu Íslands verður sett á fót sjálfstæð rannsóknareining sem fylgist með afkomu þjóðarbúsins, semur þjóðhagsspár og birtir opinberlega. Sú eining verður til með flutningi verkefna frá fjármálaráðuneyti til Hagstofunnar. Með þessu fyrirkomulagi er undirstrikað mikilvægi þess að efnahagsspá á vegum stjórnvalda sé sjálfstæð og trúverðug. Þá flytjast málefni er varða bókhald, endurskoðendur og ársreikninga til efnahags- og viðskiptaráðuneytisins í dag, en þau verkefni tengjast mjög félagarétti sem nú þegar er á forræði viðskiptaráðuneytisins. Þá eru færð frá ráðuneytinu til utanríkisráðuneytisins verkefni sem tengjast umsýslu alþjóðlegra viðskiptasamninga og til dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins ýmis lög er varða verkefni á vegum Neytendastofu og talsmanns neytenda.
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira