Greining: Spáir því að ársverðbólgan lækki í 8,5% 17. nóvember 2009 11:29
Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka um 0,6% í nóvember. Gangi spáin eftir mun verðbólgan lækka úr 9,7% í 8,5%, en svo lítil hefur verðbólgan ekki verið síðan í febrúar 2008. „Við teljum að rætur hækkunarinnar nú muni liggja í flestum meginliðum vísitölunnar, nema hvað horfur eru á að fasteignaliðurinn lækki lítillega. Verðþróun á fasteignamarkaði gefur til kynna að þar hafi orðið verðlækkun undanfarið eftir mælda verðhækkun fyrr í haust. Fasteignamarkaður er afar grunnur um þessar mundir og því geta mælst talsverðar verðsveiflur frá einum mánuði til annars án þess að það sé til marks um undirliggjandi breytingu á verðþróun.," segir í Morgunkorni greiningarinnar. Í spánni kemur fram að frá septemberbyrjun hefur gengi erlendra gjaldmiðla hækkað um ríflega hálft annað prósentustig. Þótt gengissig krónu sé mun hægara upp á síðkastið en það var á öðrum fjórðungi ársins skilar gengisbreytingin sér tiltölulega hratt inn í verð innfluttrar dagvöru og eldsneytis. Auk heldur virðist veiking krónu fyrr á árinu enn vera að skila sér inn í þá vöruflokka þar sem veltuhraði er minni, s.s. raftæki, húsbúnað og ökutæki. Síðast en ekki síst eru merki um að verð innlendrar vöru og þjónustu hafi hækkað nokkuð í kjölfar innfluttu varanna. Verðbólgan á seinni helmingi ársins virðist því ætla að verða nokkru þrálátari en við höfðum vænst. Telur greiningin að VNV hækki alls um 1% fram til áramóta og að ársverðbólga verði þá 7,3%. Í upphafi næsta árs munu taka gildi óbeinir skattar af ýmsu tagi sem ríkisstjórnin leggur nú síðustu hönd á að útfæra. Ekki liggur fyrir nákvæmlega hver sú útfærsla verður þegar þetta er ritað. „Við gerum þó ráð fyrir að áhrif á VNV verði veruleg vegna þessa á fyrstu mánuðum næsta árs og seinka hjöðnun verðbólgunnar á fyrri hluta ársins. Þannig gerum við ráð fyrir að áhrifin verði til 1,1% hækkunar á VNV í janúar og að í heildina verði áhrifin til u.þ.b. 1,3-1,4% hækkunar á VNV. Þessu mati verður þó að taka með þeim fyrirvara að breytingar á óbeinum sköttum gætu orðið með öðrum hætti en felst í þeim hugmyndum sem fjölmiðlar hafa greint frá undanfarna daga," segir í Morgunkorninu. „Við teljum að verðbólgan muni hjaðna nokkuð hratt á næstu mánuðum, svo fremi að krónan veikist ekki verulega frá núverandi gengi. Spáum við því að verðbólga mælist 3% í lok næsta árs, en 1,6% að skattaáhrifum slepptum. Gengisþróun krónu mun ráða miklu um verðbólguþróun þegar frá líður. Undirliggjandi forsenda í spá okkar er nánast óbreytt gengi út næsta ár. Veruleg styrking krónu á næstu misserum getur hins vegar orðið til þess að verðbólga mælist lítil sem engin næstu tvö árin, og að sama skapi mun frekari gengislækkun seinka aðlögun verðbólgunnar að 2,5% markmiði Seðlabankans."
Mest lesið Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira