Ísland stefnir í greiðsluþrot Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 3. september 2009 18:37
Erlendar skuldir Íslands eru að nálgast þolmörk þau sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn setti í nóvember. Heildarskuldir íslenska þjóðarbúsins og gömlu bankanna umfram eignir eru nærri sexþúsund milljarðar króna - það er á við átta Icesavesamninga. Við stefnum í greiðsluþrot segir Gunnar Tómasson hagfræðingur og fyrrverandi starfsmaður AGS. Fréttastofa sagði frá því í byrjun júlí að skuldastaða Íslands væri öllu verri en gert var ráð fyrir eftir bankahrunið - þegar Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn samþykkti að lána Íslandi. Í lánasamningnum sem gerður var milli AGS og íslenska ríkisins kom fram að ef erlendar skuldir færu upp í 240% af landsframleiðslu þá gæti landið ekki staðið undir skuldabyrði sinni. Nýjar tölur Seðlabankans - sem bankinn frestaði að birta - dregur ekki upp bjarta mynd af skuldastöðu landsins og sýnir svo ekki verði um villst að skuldastaðan er farin að nálgast umrædd þolmörk ískyggilega. Erlendar skuldir þjóðarbúsins í dag eru röskir 14.300 milljarðar króna - að meðtöldum skuldum þrotabúa bankanna. Gömlu bankarnir þrír sem nú eru í greiðslustöðvun eiga 11.020 milljarða af heildarskuldunum, og því eru brúttóskuldir íslenska þjóðarbúsins 3323 milljarðar króna. Þetta er stjarnfræðileg tala og til að gera hana viðráðanlegri má deila henni niður á þjóðina. Hvert mannsbarn hér skuldar því í erlendri mynt 10,4 milljónir króna - að frádregnum skuldum bankanna. Til að kanna hversu nálægt við erum komin að þolmörkum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er brúttóskuldunum deilt í áætlaða landsframleiðslu og niðurstaðan er 233%. Gunnar Tómasson hagfræðingur starfaði hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í aldarfjórðung. Hann segir að tölur Seðlabankans sýni að Íslendingar séu komnir á tæpasta vað með skuldastöðu þjóðarbúsins við Ísland. Íslendingar séu mjög nálægt því að stefna í greiðsluþrot.
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira