Sjötta frumkvöðlasetrið opnað í Hafnarfirði 9. október 2009 09:48
Haldið verður upp á opnun frumkvöðlasetursins Kveikjunnar í Hafnarfirði næstkomandi mánudag en það er sjötta frumkvöðlasetrið sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands opnar eftir efnahagshrunið fyrir ári síðan. Í tilkynningu segir að Kveikjan sé samstarfsverkefni Hafnarfjarðarbæjar, Garðabæjar og Álftaness og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Miklar vonir eru bundnar við samstarf sveitarfélaganna þriggja og Nýsköpunarmiðstöðvar en nú þegar hafa 16 frumkvöðlar komið sér fyrir á setrinu á Strandgötu 11 í Hafnarfirði. Þar fá þeir aðstöðu, tengslanet og stuðning til að hrinda viðskiptahugmyndunum í framkvæmd undir handleiðslu sérfræðinga Impru á Nýsköpunarmiðstöð. Viðskiptahugmyndirnar sem verið er að vinna að í Kveikjunni eru fjölbreyttar og snúa m.a. að tölvuleikjagerð, útflutningi á íslensku tónverki og afþreyingarefni, og framleiðslu á raföryggisvörum. Hugmyndirnar eru mislangt á veg komnar, sumar eru á þróunarstigi en einnig eru á setrinu sprotafyrirtæki sem hafa hafið starfsemi. Eitt fyrirtækjanna, Remake Electric, varð í fyrsta sæti í hugmyndasamkeppninni á vegum verkefnisins Start09 6. október síðastliðinn. 106 einstaklingar eru nú með aðstöðu á nýju setrunum sjö og eru margar viðskiptahugmyndir farnar að bera ávöxt. Auk þess hafa tugir einstaklinga fengið aðstöðu og stuðning tímabundið á setrunum og horfið til annarra verka. Í tilefni af opnun Kveikjunnar verður opið hús kl. 9:00 - 10:30 á Strandgötu 11 á mánudaginn 12. október. Nokkur rými eru enn laus á Kveikjunni og eru áhugasamir hvattir til að kynna sér aðstöðuna.
Mest lesið Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent 50+ konur eru framtíðin fyrir gjörbreyttan vinnumarkað Atvinnulíf Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Viðskipti innlent Skordýr í dillinu Viðskipti innlent Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Viðskipti innlent Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Sjá meira