Dönsk skattayfirvöld á auðæfaskaki í skattaskjólum 9. október 2009 09:36
Dönsk skattayfirvöld eru nú að leita að leyndum auðæfum danskra ríkisborgara í skattaskjólum eða aflandseyjum víða um heiminn. Danski skatturinn reiknar með að þetta skak muni skila þeim fleiri hundruð milljónum danskra króna í ríkiskassann. Í frétt um málið í Jyllands Posten segir að eftir að skattayfirvöld komust á snoðir um óskattlagða risabónusa sem lagðir höfðu verið inn á reikninga í skattaskjólum hefur leitin að öðrum leyndum auðæfum Dana orðið umfangsmeiri og ítarlegri. Stór rannsókn sem beinist að millifærslum frá dönskum bankareikningum og yfir á bankareikninga í skattaskjólum og öfugt er nú hafin. Áður var skatturinn kominn í gang með umfangsmikla rannsókn á kortanotkun, sem kallast „Projekt Kreditkort", en þar eru til skoðunnar erlend kreditkort sem eru notuð óvenjulega mikið í Danmörku. Einn af þeim sem skatturinn náði í skottið á með Projekt Kreditkort var golfstjarnan Sören Hansen. Hansen býr opinberlega í Mónakó þar sem hann er með lögheimili. Nú hefur efnahagsbrotalögreglan kært Hansen fyrir gróf skattsvik eftir ábendingu frá skattinum. Honum er gefið að sök að hafa aldrei flutt frá Danmörku í reynd heldur notað lögheimilið í Mónakó til að komast undan skattgreiðslum af tekjum sínum. Hansen þvertekur fyrir að þetta sé rétt. Alls hefur Projekt Kreditkort þegar gefið af sér 200 skattamál og annar eins fjöldi mála er í farvatninu. Skatturinn hefur þegar sent út kröfur upp á 300 milljónir danskra kr. Þá hefur skatturinn skoðað 300 gjaldeyrisreikninga í dönskum bönkum þ.e. reikninga sem eru án kennitölu. Reikningar þessir hafa oft verið notaðir til að taka við „launagreiðslum" frá aflandseyjum.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira