Forsætisráðherra: Mjög alvarlegt ef AGS tefst lengur 9. október 2009 13:17
Töf á afnámi gjaldeyrishafta, lækkun á lánshæfismati ríkins niður í flokk ótryggra fjárfestinga, líkur á vaxtahækkun, þrýstingur á gengislækkun og þar með aukning verðbólgu ásamt töfum á endurreisn atvinnulífs með vaxandi atvinnuleysi, eru meðal líklegra afleiðinga þess að frekari tafir verði á endurskoðun efnahagsáætlunar stjórnvalda og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins (AGS). Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu um afleiðingar þess að frekari töf verði á endurskoðun áætlunnar AGS. Neikvæð áhrif á gengi krónunnar og verðbólgu hefðu svo bein áhrif á skuldastöðu heimilanna vegna gengis- og verðtryggingar lána. Þetta kemur m.a. fram í mati annars vegar Seðlabanka Íslands og hins vegar efnahags- og viðskiptaráðuneytisins sem forsætisráðherra óskaði eftir. Í mati efnahags- og viðskiptaráðuneytisins segir að frestun á á samningum um Icesave geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir Tryggingarsjóð innistæðueigenda óháð því hvort afgreiðslu AGS verður lokið á næstunni eða ekki. Frestur sjóðsins til að greiða innistæðueigendum út þær upphæðir sem þeir eiga rétt á rennur út 23. október nk. og ekki er heimilt að framlengja frestinn frekar en gert hefur verið. Útilokað er að sjóðurinn geti staðið við lagalegar skuldbindingar sínar verði enn ósamið um Icesave þegar fresturinn rennur út. Sjóðurinn getur því átt von á málssókn á hendur sér og sömuleiðis ríkið fyrir að mismuna innistæðueigendum eftir staðsetningu. Talið er að áhrif þessa á lánshæfiseinkunn ríkissjóðs yrði án efa neikvæð og að lánshæfismatsfyrirtækin myndu bregast við fljótlega með lækkun á lánshæfiseinkunn ríkissjóðs. Í áliti Seðlabankans segir að líklegt sé að lánshæfismat Íslands verði lækkað náist ekki sátt í Icesave-deilunni. Alvarlegt sé ef lánshæfismatið fellur niður fyrir fjárfestingaflokk þar sem þá kunna stofnanafjárfestar að vera tilneyddir til að selja eignir sínar um leið og færi gefst, sem gæti enn frekar tafið afnám gjaldeyrishafta. Lægra lánshæfismat gæti orðið til þess að það reyndi á ákvæði í lánasamningum íslenskra fyrirtækja og sveitarfélaga og torveldað endurfjármögnun þeirra á næstu árum. Efnahags og viðskiptaráðuneytið bendir á að mestu skipti að draga úr óvissu og styðja við endurreisn: "Endurreisn atvinnulífs og viðnám gegn kjararýrnun og atvinnuleysi byggir á því að dregið verði úr óvissu um efnahagsþróun og að fjármálakerfið nái að starfa eðlilega. Kjölfesta þess er framgangur efnahagsáætlunar ríkisstjórnarinnar og samvinna við AGS ásamt fjármögnun þeirri sem sjóðurinn og grannþjóðirnar veita er mikilvæg forsenda árangurs."
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira