Deloitte annast endurskoðun á Seðlabanka Íslands Jón Hákon Halldórsson skrifar 24. ágúst 2009 15:15
Ríkisendurskoðun hefur samið við endurskoðunarfélagið Deloitte hf. um að annast ytri endurskoðun Seðlabanka Íslands á tímabilinu 2009-2011. Þá hafa Ríkisendurskoðun og Seðlabankinn samið um að stofnunin annist innri endurskoðun bankans á sama tímabili. Í tilkynningu frá Ríkisendurskoðun kemur fram að í júlí síðastliðnum hafi Ríkisendurskoðun, sem lögum samkvæmt annast endurskoðun Seðlabankans, falið Ríkiskaupum að bjóða út ytri endurskoðun bankans. Tilboð bárust frá fjórum endurskoðunarfélögum: Deloitte hf., KPMG hf., PricewaterhouseCoopers hf. og BT sf. Allir bjóðendur nema sá síðastnefndi uppfylltu skilyrði útboðsins og af þeim sem uppfylltu þau reyndist verðið lægst hjá Deloitte. Samningur milli Ríkisendurskoðunar og Deloitte var undirritaður 24. júlí síðastliðinn og nær til þriggja ára, 2009-2011. Samkvæmt samningnum mun félagið endurskoða ársreikning bankans og árita hann í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Jafnframt skal það árita hálfsársuppgjör bankans með könnunaráritun. Hins vegar felur verkefnið ekki í sér stjórnsýsluendurskoðun og verktaki má hvorki veita bankanum ráðgjöf sem ekki tengist beint starfi hans sem endurskoðanda né sinna öðrum störfum sem geta haft áhrif á óhæði hans. Þá undirrituðu Ríkisendurskoðun og Seðlabankinn nýlega samning um að stofnunin taki að sér vinnu við innri endurskoðun bankans á tímabilinu 2009-2011. Samkvæmt samningnum skal Ríkisendurskoðun m.a. leggja mat á og bæta virkni áhættustýringar, eftirlitsaðferða og stjórnunarhátta með kerfisbundnum og öguðum vinnubrögðum og styðja þannig bankann í að ná markmiðum sínum. Áður annaðist deild innri endurskoðunar í bankanum þetta verkefni. Í tilkynningu frá Ríkisendurksoðun kemur fram að framangreindar breytingar á fyrirkomulagi ytri og innri endurskoðunar Seðlabanka Íslands eru í samræmi við samkomulag íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira