Gengishrun íslensku krónunnar með því mesta í sögunni 10. júlí 2009 08:12
Raungengi íslensku krónunnar féll um rúm 44% frá því í lok júní 2007 þar til í lok nóvember 2008, miðað við körfu 58 mynta heims samkvæmt útreikningum Alþjóðagreiðslubankans í Basel (BIS). Hagfræðideild Landsbankans fjallar um þetta í Hagsjá sinni. Þar segir að þetta sé fjórða mesta hrun gjaldmiðils á 18 mánaða tímabili samkvæmt gagnagrunni BIS sem nær aftur til 1994. Ísland á hinsvegar heimsmetið yfir hrun raungengis frá ársbyrjun 2008. Á því tímabili féll raungengi krónunnar um 38% en næst í röðinni kemur suður-kóreska vonnið sem rýrnaði að kaupmætti um 24% á sama tíma, breska pundið og nýsjálenski dollarinn sem féllu um 18%. Raungengi er mælikvarði á kaupmátt íslenskrar krónu að teknu tilliti til gengis gagnvart helstu myntum og verðbólgu innanlands og utan. BIS miðar í sínum útreikningi við körfu 58 gjaldmiðla og neysluverðsvísitölu í hverju landi. Seðlabanki Íslands sem birti nýjar tölur yfir raungengi fyrr í vikunni miðar við þrengri myntkörfu og færri viðskiptalönd, en niðurstaðan virðist vera mjög sambærileg. Mesta fall raungengis á átján mánuðum sem skráð er af BIS síðustu 15 árin var þegar kaupmáttur indónesískrar rúpíu féll um 68% frá ársbyrjun 1997 fram á mitt ár 1998. Þá féll raungengi argentínska pesans um 62% frá ársbyrjun 2001 og kaupmáttur rússnesku rúblunnar féll um 51% frá því september 1997 og næstu 18 mánuði. Sorgarsaga krónunnar frá því að fjármálakreppan hófst á miðju ári 2007 er svo næst á þessum lista. Kaupmáttur nokkurra Evrópumynta rýrnaði einnig um 15-25% á átján mánuðum á sjöunda og áttunda áratugnum, svo sem finnska marksins, breska pundsins, portúgalska skútans og ítölsku lírunnar. Sæti krónunnar yfir rýrar myntir virðist hinsvegar í lítilli hættu. Mesta styrking raungengis íslensku krónunnar á 18 mánaða tímabili samkvæmt mælingu BIS var 23% frá maílokum 2004 til októberloka 2005. Svo miklar sveiflur eru fátíðar en þó má finna nokkuð mörg dæmi um að raungengi krónunnar styrkist eða veikist um meira en 10% á átján mánuðum en þau dæmi eru mun algengari eftir 2004 en fyrir þann tíma.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira