Um 200 manns starfa hjá skilanefndum gömlu bankanna 10. júlí 2009 12:21
Gera má ráð fyrir að um 200 manns starfi hjá skilanefndum þrotabúa Kaupþings, Glitnis og Landsbankans. Rúmlega 60 manns starfa hjá skilanefnd Kaupþings Ef gert er ráð fyrir að fjöldi starfsmanna sé svipaður hjá skilanefndum Glitnis og Landsbankans þýðir að um 200 manns starfa hjá skilanefndum bankanna. Fréttastofa sendi skilanefndum Kaupþings, Glitnis og Landsbankans fyrirspurn um ýmsa þætti er varða starfsemi þeirra. Fyrirspurnin var send fyrir tveimur vikum en svör hafa ekki enn borist frá skilanefndum Glitnis og Landsbankans. Ekki fengust svör við því hver samanlögð útgjöld skilanefndar Kaupþings eru frá upphafi starfseminnar. Skilanefndin taldi sér ekki fært að gefa það upp enda hafi þær upplýsingar ekki verið birtar opinberlega og skilanefndin leggur mikið upp úr jafnræði meðal kröfuhafa og vill tryggja að upplýsingar berist til þeirra áður en þær birtast í fjölmiðlum. Síðasta mat á eignasafni gamla Kaupþings var kynnt kröfuhöfum í febrúar. Samkvæmt því mati er áætlað virði eigna bankans 618 milljarðar. Í svörum Kaupþings kom fram að skilanefndin hafi ekki tekið yfir nein íslensk fyrirtæki. Stærstur hluti fyrirtækjalánasafns bankans sé erlendur og í nokkrum tilfellum hafi verið framkvæmd nauðsynleg endurskipulagning á fyrirtækjum. Dæmi um slíka endurskipulagningu er Mosaic Fashions. Þá hefur Kaupþing sett sína fulltrúa í stjórn nokkurra fyrirtækja sem tilheyrðu eignasafni Robert Tchenguiz. Þess má geta að Tchenguiz var einn stærsti viðskiptavinur Kaupþings og sat meðal annars í stjórn Exista, sem átti ráðandi hlut í bankanum á sínum tíma. Eina dótturfélagið sem í dag er á forræði skilanefndarinnar er FIH bankinn í Danmörku, en hann er í fullum rekstri og ekki í söluferli. Í lok maí var skipuð slitastjórn yfir bankanum til að hefja formlegt kröfulýsingaferli. Það ferli mun hefjast á næstunni og standa yfir í sex mánuði. Að því loknu verður útbúin skrá yfir kröfur og afstöðu slitastjórnar til hverrar kröfu fyrir sig, og mun það taka talsverðan tíma. Þá verður ýmist hægt að ganga til nauðasamninga eða fara með bankann í gjaldþrotaskipti. Þess má vænta að það taki nokkur ár að ganga frá eignum Kaupþings, sama hvor leiðin verður farin, samkvæmt svörum skilanefndar. Um 60 manns starfa hjá skilanefndinni. Gera má ráð fyrir að svipaður fjöldi starfi hjá skilanefndum Glitnis og Landsbankans.
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira