Skilanefndarmenn þurfa að bera ábyrgð Jón Hákon Halldórsson skrifar 14. maí 2009 11:34 Álfheiður Ingadóttir segir það mjög skrýtið ef að einstakir starfsmenn eiga að taka ábyrgð á störfum nefndanna. Mynd/ Stefán.
Formaður skilanefndar og skilanefndamenn þurfa að bera ábyrgð á störfum nefndanna en ekki einstakir starfsmenn þeirra, segir Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs. Álfheiður var fulltrúi VG í viðskiptanefnd Alþingis fram að kosningum. Álfheiður segist ekki hafa kynnt sér sölu skilanefndar Gamla Landsbankans á hlut í Byr sparisjóði sem fyrirhuguð var, umfram það sem komið hefur fram í fjölmiðlum. Til stóð að skilanefndin seldi 2,6% hlut í sparisjóðnum en eftir að sagt var frá málinu í kvöldfréttum Stöðvar 2 á mánudaginn lýsti skilanefndin því yfir að hætt hefði verið við söluna vegna þess að ekki hefði fengist samþykki fyrir henni hjá skilanefndinni. Seinna lýsti upplýsingafulltrúi skilanefndar því yfir að ákvörðun um söluna hefði verið tekin af starfsmönnum skilanefndarinnar en ekki skilanefndarmönnum. Álfheiður segist ekki telja að þetta hafi verið eðlilegur framgangsmáti. Salan hafi verið stöðvuð og það sé mjög gott. Ekki gott að benda á aðra Aðspurð segist Álfheiður þó ekki vita hvort hún telji skýringar upplýsingafulltrúans, að starfsmenn nefndarinnar hafi ákveðið söluna, trúverðugar. „Almennt er það ekki góður siður, hjá mönnum sem bera ábyrgð, að benda á aðra. Og ef það er þannig að það eru bara einhverjir starfsmenn sem taka ákvarðanir og bera ábyrgð, þá er það mjög skrýtið," segir Álfheiður. Álfheiður segist telja eðlilegt, óháð eðli málsins sem um ræðir, að þeir sem beri raunverulega ábyrgð á störfum skilanefndanna sem slíkra, það er skilanefndamenn og formaður skilanefndarinnar, axli ábyrgð á störfum nefndarinnar. Þeir geti ekki vísað henni frá sér. „Við tölum um gagnsæi í störfum og framgangsmáta í þessum efnum og það er vonandi að það sé alls staðar," segir Álfheiður. Fréttastofa hefur ítrekað reynt að ná sambandi við Lárus Finnbogason, formann skilanefndar Gamla Landsbankans, vegna málsins. Lárus hefur ekki svarað.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira