Skilanefnd Spron selur eignir með tölvupósti til útvaldra Sigríður Mogensen skrifar 13. maí 2009 18:30
Skilanefnd Spron hefur sent út tölvupóst til örfárra aðila þar sem hún óskar eftir tilboðum í hugbúnaðarfyrirtæki í sinni eigu. Ekkert formlegt söluferli fór fram. Nokkur umræða hefur verið um það hvernig skilanefndir fjármálafyrirtækja fara með eignir og standa að sölu þeirra. Nú hefur skilanefnd Spron ákveðið að selja hugbúnaðarfyrirtækið LAX solutions, sem er 60% í eigu skilanefndarinnar og 40% í eigu fyrirtækis að nafni Teris. Þá er skilanefnd Spron einnig að reyna að koma í verð hugbúnaðarkerfinu XLS sem var að fullu í eigu sparisjóðsins. XLS og LAX solutions þróa hugbúnað fyrir fríðindakerfi, þar á meðal e-kortin, en samkvæmt heimildum fréttastofu hefur um 100-200 milljónum króna verið varið í þróunarkostnað. Það sem vekur athygli við söluna er að ekkert opinbert söluferli hefur farið fram og eignirnar voru ekki auglýstar til sölu. Heimildir fréttastofu herma að tölvupóstur hafi verið sendur til örfárra aðila þar sem þeim var boðið að gera tilboð í eignirnar, en í honum kom meðal annars fram að tilboðsfrestur rennur út á morgun. Þess má geta að forsvarsmenn Teris vissu ekki af tölvupóstinum.
Mest lesið „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira