Stofnuð verði opinber fasteignafélög til að yfirtaka skuldsettar eignir 6. september 2009 12:11 Skúli Thoroddsen
Starfsgreinasambandið leggur til að stofnuð verði sérstök opinber fasteignafélög sem geta yfirtekið skuldsettar eignir og forðað fólki frá gjaldþroti. Félögunum verði síðan gert skylt að leigja þessar eignir til baka til að tryggja áframhaldandi búsetu. Aðilar vinnumarkaðarins hafa kallað eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar til handa skuldsettum heimilum. Starfsgreinasambandið vill koma á fót opinberum fasteignafélögum, hugsanlega með aðkomu lífeyrissjóða eða annarra fjárfesta, sem geta yfirtekið skuldsettar eignir. Markmiðið er að forða fólki frá gjaldþroti og einnig koma í veg fyrir að fjölskyldur missi heimili sitt. Skúli Thoroddsen, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, segir að svipuð félög séu mjög algeng í Skandinavíu. „Það gæti alveg hugsast að þetta sé góð lausn. Það er að slík fasteignafélög tækju yfir eignir fólks í vanda en þá um leið að þessum félögum yrði gert skylt með lögum að tryggja einstaklingum áframhaldandi búsetu í þessum eignum. Þá á einhverjum leigukjörum sem samsvara að minnsta kosti ekki hærri upphæðum en vaxtabyrði var af lánum áður en bankarnir hrundu," segir Skúli. Hann segir einnig að ríkisstjórnin þurfi að koma fram með raunhæfar lausnir á vanda skuldsettra heimila. Opinber fasteignafélög gætu verið hluti af þeirri lausn. „En ég er ekki að segja að hún henti öllum, en hún myndi bjarga mörgum. Hún mundi bjarga fjölskyldum frá gjaldþroti og koma í veg fyrir þá örvæntingu sem ríkir í mörgum fjölskyldum sem eru við það að missa húsnæði sitt og vita ekki sitt rjúkandi ráð hvert stefnir."
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira