Heildaraflinn minnaði um 13% milli ára í nóvember 15. desember 2009 09:06
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum nóvembermánuði, metinn á föstu verði, var 13,2% minni en í nóvember 2008. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 3,9% miðað við sama tímabil 2008, sé hann metinn á föstu verði. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að aflinn í nóvember 2009 var 85.690 tonn samanborið við 117.837 tonn í sama mánuði árið áður. Botnfiskafli dróst saman um 3.600 tonn frá nóvember 2008 og nam tæpum 37.600 tonnum. Þar af nam þorskaflinn rúmum 16.200 tonnum, sem er um 1.000 tonnum meira en árið áður. Ýsuaflinn nam tæpum 5.300 tonnum sem er um 2.900 tonnum minni afli en í nóvember 2008. Ufsaaflinn stóð nokkurn veginn í stað á milli ára og nam 6.300 tonnum. Rúm 4.200 tonn veiddust af karfa sem er um 2.800 tonnum minni afli en í nóvember 2008. Afli uppsjávartegunda nam tæpum 45.500 tonnum sem er 29.000 tonnum minni afli en í nóvember 2008. Skýrist sú breyting nær alfarið af minni síldarafla. Í nóvember veiddust einnig tæp 1.500 tonn af gulldeplu en ekkert var veitt af henni í nóvember 2008. Flatfiskaflinn var 1.927 tonn í nóvember 2009 og stóð nokkurn veginn í stað á milli ára. Skel- og krabbadýraafli nam 618 tonnum samanborið við 198 tonna afla í nóvember 2008. Af öðrum afla veiddust 108 tonn af sæbjúgu í mánuðinum. Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2007. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira