Erlendir aðilar eiga 62% af útistandandi ríkisbréfum 15. apríl 2009 11:55
Erlendir aðilar áttu í febrúarlok ríkisbréf og -víxla fyrir tæplega 200 milljarða kr. að nafnvirði. Þar af nam eign þeirra í ríkisbréfum 175 milljörðum kr., sem jafngildir 62% af útistandandi ríkisbréfum að viðbættum lánsbréfum til aðalmiðlara. Ríkisvíxlaeign erlendra aðila nam 21 milljarði kr. sem samsvarar rúmlega 27% af útistandandi víxlum í lok febrúar. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu en upplýsingarnar koma fram í nýbirtu mánaðaryfirliti Seðlabankans yfir lánamál ríkisins. Útlendingar voru umsvifamestir í þeim ríkisbréfum sem stystan líftíma hafa. Erlendir fjárfestar áttu þannig í febrúarlok 131 milljarða kr. í stystu ríkisbréfaflokkunum tveimur sem samsvarar 79% af heildarstærð þessara flokka. Bankar og sparisjóðir voru næststærstu eigendur ríkisbréfa, með tæp 14% af útistandandi bréfum. Athyglisvert er hins vegar að lífeyrissjóðir áttu í febrúarlok aðeins rúm 6% af útistandandi ríkisbréfum. Þar verður raunar að taka með í reikninginn að óbein eign þeirra í gegn um verðbréfa- og fjárfestingasjóði kann að vera nokkur, en slíkir sjóðir áttu 6,5% af útistandandi ríkisbréfum í febrúarlok.Athygli vekur að þrátt fyrir mikla ríkisbréfaeign erlendra fjárfesta hafa þeir haldið sig til hlés í útboðum Seðlabankans á ríkisbréfum undanfarið. Þannig keyptu þeir ekkert í síðasta ríkisbréfaútboði þann 20. mars síðastliðinn, þegar boðnir voru út þrír lengstu flokkar ríkisbréfa. Virðast erlendir aðilar að mestu leyti kaupa ríkisbréf sín á eftirmarkaði þessa dagana. Áhugasamari voru útlendingarnir um útboð ríkisvíxla 18. mars, en samkvæmt mánaðarriti Seðlabanka keyptu þeir víxla fyrir 11,5 milljarða kr. af þeim 20 milljörðum kr. sem alls voru seldir í útboðinu.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira