Óþekkt fyrirtæki greiðir hærri skatt en Alcoa 8. nóvember 2009 18:45
Óþekkt fyrirtæki skráð í Mosfellsbæ greiðir hærri skatta til samneyslunnar en álver Alcoa á Reyðarfirði. Fyrirtækið Mosfellska er í fjórða sæti yfir þau félög utan Reykjavíkur sem greiða hæstu skattana til þjóðfélagsins. Á topp tíu listum skattaumdæmanna kemur líklega fæstum á óvart að það fyrirtæki sem greiðir hæstu skatta utan Reykjavíkur er álverið í Straumsvík með tæpan milljarð, og þá álverið á Grundartanga sem greiðir 745 milljónir króna. Ítalska verktakafyrirtækið Impregilo sem vann að Kárahnjúkavirkjun er síðan í 3. sæti. Í fjórða sæti utan Reykjavíkur er hins vegar lítt þekkt einkahlutafélag sem heitir Icecraft. Það greiðir 208 milljónir króna í skatta fyrir síðasta ár. Þær láta ekki mikið yfir sér skrifstofur Icecraft á Íslandi í Skógarhlíðinni í Reykjavík. Eftir því sem fréttastofa kemst næst starfar félagið ekkert á Íslandi heldur aðallega á Norðurlöndunum við að kaupa og selja flugvélar. Þannig hefur það víst haft milligöngu um sölu á mörgum cessna flugvélum á síðustu árum. Síðastliðið ár var óvenju gott í sögu félagsins, svo gott að hagnaðurinn nær sextánfaldaðist á milli ára, fór úr rúmum hundrað milljónum króna árið 2007 - í 1600 milljónir á síðasta ári. Ævintýralegur vöxtur. Hvernig hann er tilkominn er ekki gott að segja því eigandi félagsins baðst undan viðtali. En flugvélasalan hefur gengið vel í fyrra því Icecraft borgaði fimmtán milljónum meira í skatta en sjálft álverið á Reyðarfirði.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira