Viðskipti innlent

Mikil eftirspurn eftir ríkisvíxlum

Mikil eftirspurn var eftir ríkisvíxlum á útboði með tilboðsfyrirkomulagi sem fór fram hjá Seðlabanka Íslands í dag. Alls bárust 55 gild tilboð í flokkinn RIKV 09 0915 að fjárhæð 53,4 milljarðar kr. að nafnverði.

Í tilkynningu segir að tilboðum var tekið fyrir 20 milljarða kr. að nafnverði á meðalverðinu 98,078 (flatir vextir 5,74%). Hæsta verð tekinna tilboða var 98,170 (5,46%) og lægsta verð tekinna tilboða var 98,000 (5,97%).

Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×