Nýjar reglur hjá Seðlabankanum Gunnar Örn Jónsson skrifar 30. júní 2009 16:45
Undanfarnar vikur hefur verið unnið að endurskoðun á reglum um viðskipti fjármálafyrirtækja við Seðlabanka Íslands. Nýjar reglur munu taka gildi á morgun en tilgangur með endurskoðun reglnanna er að skýra betur þá fyrirgreiðslu sem Seðlabankinn veitir fjármálafyrirtækjum. Nýju reglurnar eru í grundvallaratriðum svipaðar og eldri reglur. Tvær breytingar eru þó frá eldri reglum sem nauðsynlegt er að skýra sérstaklega. Í fyrsta lagi eru settar strangari reglur um þær tryggingar sem eru hæfar í viðskiptum við Seðlabankann. Hæfar tryggingar í viðskiptum við Seðlabanka Íslands eru nú einkum íbúðabréf Íbúðalánasjóðs, ríkisbréf og ríkisvíxlar. Í öðru lagi eru í nýju reglunum ákvæði sem veita Seðlabankanum víðtækari og skýrari heimildir til stýra lausu fé á markaði. „Bankar gátu fengið veðlán einu sinni í viku, þeir fengu þá fjárhæð sem þeir þurftu svo framarlega sem Seðlabankinn taldi að þau veð sem lágu að baki væru traust. Með þessum nýju reglum er Seðlabankinn að reyna að tempra sveiflur krónumagns í umferð. Við erum hreinlega að þrengja veðgrunninn þar sem við tökum takmarkaðri veð en áður. Við erum sem sagt að færa okkur í aðeins stýfara umhverfi en áður ríkti," segir Gerður Ísberg hjá Seðlabankanum í viðtali við Vísi. Gerður segir ennfremur að Seðlabankinn hafi einfaldlega þurft að vera með betri lausafjárstýringu. Gömlu lögin gáfu bönkunum færi á að leggja ýmiss konar veð sem tryggingu fyrir lánum Seðlabankans en nú tekur Seðlabankinn einungis við veðum í íslenskum krónum. Það þýðir meðal annars, að ekki er lengur hægt að leggja að veði lán eins og sértryggð skuldabréf (e. covered bonds) sem gömlu viðskiptabankarnir áttu í miklum mæli og Seðlabankinn tók að veði gegn fyrirgreiðslu til bankanna.
Mest lesið Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Viðskipti innlent Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Viðskipti innlent Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Viðskipti innlent Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Viðskipti innlent Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Viðskipti innlent Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Viðskipti innlent Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent „Biðin er dýrust“ Viðskipti innlent Methagnaður norska olíusjóðsins Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Sjá meira