Viðskipti innlent

Íbúðalánasjóður lækkar vexti

Íbúðalánasjóður hefur í í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánavextir sjóðsins breytist sem hér segir: Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða 4,70% en 5,20% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis.

Hin nýja vaxtaákvörðun tekur gildi í dag, 12. maí 2009.

Í tilkynningu segir að vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 11. maí s.l. ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa.

Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 4,24%. Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,25%, vegna útlánaáhættu 0,20% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,50%.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×