Seldi BYR-hlut án samþykkis skilanefndar Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 12. maí 2009 18:30
Yfirlögmaður Landsbanka Íslands skrifaði undir framsalsbeiðni á 2,6% hlut skilanefndarinnar í BYR þrátt fyrir að hann hefði ekki haft samþykki skilanefndarinnar. Allt í plati segir skilanefndin sem hætti við söluna eftir frétt Stöðvar 2 í gærkvöld. Stofnfjáreigandi vill senda skilanefndina út í fjós að vinna. Samkvæmt heimildum fréttastofu barst framsalsbeiðni á hlut Landsbankans inn á borð stjórnar BYRS í síðustu viku. Óskað var eftir því að sala á hlut bankans til lítils fjárfestingarfélags, Reykjavik Invest, yrði samþykkt. Eggert Páll Ólason, yfirlögmaður Landsbanka Íslands, skrifaði undir framsalsbeiðnina. Páll Benediktsson, upplýsingafulltrúi Landsbankans, segir að framsalsbeiðnin hafi verið með fyrirvara um samþykki skilanefndarinnar. Stjórn BYRS tekur aftur á móti engar beiðnir til greina nema að sá aðili sem sendir beiðnina hafi umboð þeirra sem halda utan um hlutinn, í þessu tilviki skilanefndarinnar. Form beiðnarinnar var með hefðbundnum hætti og var salan samþykkt. Stofnfjárlista BYRS var breytt í kjölfarið og Reykjavik Invest var með 10 stærstu eigendum sjóðsins. Skilanefndin fundaði eftir fréttir okkar í gær og tók þá ákvörðun að ógilda söluna. Páll segir ákvörðunina byggjast á því að salan hafi ekki verið góð fyrir hagsmuni bankans. Lárus Finnbogason, formaður skilanefndarinnar og endurskoðandi Reykjavik Invest, hefur ekki viljað tjá sig um málið í dag þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og sver af sér að hafa komið að þeirri ákvörðun að selja hlutinn. Athygli vekur þó að tveir skilanefndarmenn heyrðu fyrst um málið í fréttum okkar í gær, þeir Einar Jónsson og Lárentsínus Kristjánsson. Á fréttamannafundi á Akureyri í dag voru forsætisráðherra, fjármálaráðherra og viðskiptaráðherra öll sammála um það að Fjármálaeftirlitið verði að rannsaka þetta mál hratt og vel. Í samtali við fréttastofu í dag sagði Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, að búið væri að kanna málið. Um mistök starfsmanna Landsbankans væri að ræða og málið yrði ekki rannsakað frekar nema að eitthvað annað kæmi í ljós. Mikil átök hafa verið í BYR en aðalfundur er á morgun þar sem ný stjórn félagsins verður kosin. Stofnfjáreigendum sem fréttastofa hefur rætt við þykir tímasetning á sölunni vera undarleg og eru ósáttir við störf skilanefndarinnar.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira