Landsbankinn reistur við á ný 17. desember 2009 06:00 samkomulagið skoðað Almenn sátt virðist með samkomulag um uppgjör eigna og skulda á milli gamla og nýja Landsbankans. Bankastjórinn segir mikilvægt að byggja upp traust á bankanum á ný. Fréttablaðið/Gva
Samið var um uppgjör eigna og skulda Landsbankans í fyrrinótt. Fjármálaráðherra er sáttur og segir endurreisn bankakerfisins ekki nærri eins kostnaðarsama og óttast var í fyrstu. „Þetta er jákvætt og mýkir lendinguna,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um samkomulag ríkisins við skilanefnd gamla Landsbankans og kröfuhafa um uppgjör eigna og skulda nýja bankans. Samkomulagið og stofnefnahagsreikningur bankans voru kynnt í höfuðstöðvum Nýja Landsbankans (NBI) í gær. Ríkið leggur bankanum til 122 milljarða króna eiginfjárframlag í skiptum fyrir 81 prósents hlut í bankanum. Þetta er um 78 milljörðum lægri upphæð en upphaflega var reiknað með að ríkið þyrfti að leggja til bankans. Heildarframlag ríkisins til bankanna þriggja nemur nú samtals 137 milljörðum króna auk fimmtíu milljarða í víkjandi lánum. Gert var ráð fyrir að endurreisn bankanna myndi kosta ríkissjóð 385 milljarða. Forgangskröfuhafar, breska og hollenska ríkið, fara með nítján prósenta hlut í NBI á móti ríkinu. Náist samkomulag um Icesave-málið mun Tryggingasjóður innstæðueigenda eignast tæp sextíu prósent krafna í bú gamla bankans. Þessu til viðbótar gefur NBI út skuldabréf til gamla bankans til tíu ára upp á 247 milljarða króna. Vaxtaálagið nemur 1,75 prósentum yfir Libor-vöxtum. Aðeins eru greiddir vextir af bréfinu fyrstu fimm árin en afborganir bætast við að þeim tíma liðnum. Ásmundur Stefánsson bankastjóri segir niðurstöðuna afar ánægjulega enda tryggi skuldabréfið, sem er í breskum pundum, Bandaríkjadölum og evrum, erlenda fjármögnun NBI og íslenskra fyrirtækja sem þurfa á erlendu lánsfé að halda um nokkurra ára skeið, eða þar til erlendir lánsfjármarkaðir opna dyrnar fyrir bankann á ný. Heildareignir nýja bankans, sem verður umsvifamesti banki landsins, nema 944 milljörðum króna. Þar af eru útlán til viðskiptavina 608 milljarðar króna. Ásmundur segir eignavirði nýja bankans endurspegla mat á eignum eftir flutning úr þeim gamla. Hann gat hvorki tjáð sig um það hversu mikil niðurfærsla eigna var né fengust upplýsingar um það þegar eftir því var leitað. Hann benti þó á að rétti efnahagslífið úr kútnum geti það skilað sér í auknu verðmæti eigna, jafnvel upp á hundrað milljarða króna. „Þetta er ekki áætlun, heldur von okkar,“ segir hann. Ásmundur segir orðspor Landsbankans hafa orðið fyrir miklum skakkaföllum í fjármálahruninu. „Bankinn er ekki traustur í þeirri merkingu að hann hafi áunnið sér traust umhverfisins. Það vantar mikið upp á það. En fjárhagslegur grundvöllur er það í dag og á því getum við byggt. Við verðum að vinna að því,“ segir hann. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira