Rannsóknir á Drekasvæðinu gætu hafist í sumar 19. maí 2009 11:19
Bandaríska fyrirtækið Ion GX Technology hefur sótt um leitarleyfi á Drekasvæðinu en fyrirtækið vill framkvæma mælingar á svæðinu í sumar til að selja áfram til fyrirtækjanna sem sóttu um sérleyfin. Samþykki Orkustofnun umsóknina verður hægt að byrja rannsóknir á Drekasvæðinu strax í sumar.Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar er fjallað um Drekasvæðið en tvö norsk fyrirtæki, Aker Exploration og Sagex Petroleum, hafa boðið í sérleyfi til olíuleitar á svæðinu.Kunngjört verður í október hvort þau hljóti leyfin eður ei. Hægt verður að samþykkta bæði leyfin þar sem fyrirtækin sóttu ekki um leitar- og vinnsluleyfi á sama svæði en stærð hvers leyfissvæðis er takmörkuð við 800 ferkílómetra.Greiningin segir að þrátt fyrir að formlegt ferli að rannsóknum á Drekasvæðinu sé nú hafið gæti það tekið áratugi þar til þessi auðlind færi að skila tekjum í þjóðarbúið. Enn sem komið er veit enginn með neinni vissu hvort vinnanlegt magn af olíu og gasi komi til með að finnast á svæðinu og mun það ekki koma í ljós fyrr en með árangursríkum borunum.Í ljósi þess hversu sambærilegt Drekasvæðið er við svæði við Noreg og í Barentshafi þar sem fundist hafa olía og gas er það þó talið líklegt. Sú reynsla sem fengist hefur við vinnu af sambærilegum svæðum gefur til kynna að rannsóknir gætu tekið allt að áratug áður en nokkuð finnist. Finnist olía og gas í vinnanlegu magni, getur vinnslan tekið 20-40 ár.Hinsvegar er mikilvægt að hafa í huga að þjóðarbúið mun hafa talsverðan hag af rannsóknarvinnu og olíu og gasleit á svæðinu enda er slík leit afar kostnaðarsöm og mun hafa talsverða veltu í för með sér og skapa störf sem er afar kærkomið í því árferði sem nú ríkir.
Mest lesið „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ Viðskipti innlent Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum Viðskipti innlent „Biðin er dýrust“ Viðskipti innlent Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Neytendur Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Viðskipti innlent Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Viðskipti innlent Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Viðskipti innlent Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Viðskipti innlent Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Sjá meira